| Félag um 18. aldar fræði |
|
Ný heimasíða Átjándu aldar félagsins. Velkomin á nýja heimasíðu félagsins. Félag um átjándu aldar fræði er fræðafélag sem hefur að markmiði að efla rannsóknir á sviði átjándu aldar fræða og skyldra efna, bæði hér á landi og erlendis. Félagið stendur árlega fyrir fjölda ráðstefna, málþinga og funda, ýmist eitt og sér eða í samstarfi við aðra aðila. Stjórn félagsins skipa nú Þóra Kristjánsdóttir, sem er formaður, Sigurður Pétursson, varaformaður, Gunnar Hannesson, ritari, Helga Kristín Gunnarsdóttir, gjaldkeri, Ingi Sigurðurson, Bragi Þ. Ólafsson, Ólöf Garðarsdóttir Ragnhildur Bragadóttir og Svanfríður Óskarsdóttir meðstjórnendur. Félagið gefur út vefritið Vefni. Ritstjóri er Bragi Þ. Ólafsson (bragio@bok.hi.is). Félagið er aðili að Heimssamtökum félaga um átjándu aldar fræði (International Society for Eigteenth-Century Studies/Société d'étude du XVIIIe siècle), en upplýsingar um þau má nálgast á slóðinni www.c18.org.
|
| Copyright © 2005 Your Company Name. All rights reserved. Designed by TemplateYes |