Föstudaginn, 7. maí, kl. 17:00 opnar sýning í Hoffmannsgalleríi undir heitinu VINNUSTOFA.
Á sýningunni eru verk eftir 7 fatlaða listamenn sem hafa unnið í nokkurs konar vinnustofu í Myndlistaskólanum í Reykjavík í vetur. Vinnustofan er samstarfsverkefni Myndlistaskóla Reykjavíkur og Fjölmenntar, símenntunar- og þekkingarmiðstöðvar. Síðastliðna tvo vetur hefur Myndlistaskólinn boðið heilsvetrarnám í myndlist fyrir fatlað fólk og er markmið námsins að þátttakendur kynnist helstu aðferðum í hugmyndavinnu og útfærslu í myndlist og þeir finni eigin styrk og listræna sérstöðu.
Upplestur og pallborðsumræður um bókina "Freyjuginning" 1.júní
Rithöfundurinn Christina Sunley heimsækir ReykjavíkurAkademíuna
Upplestur og pallborðsumræður í ReykjavíkurAkademíunni, JL húsinu Hringbraut 121, 4. hæð, þriðjudaginn 1. júní kl 16:00.
Á síðustu bókavertíð kom út skáldsagan Freyjuginning, um litríkt fók af íslenskum ættum eftir bandaríska rithöfundinn Christinu Sunley. Hún kynnir bók sína og les upp úr henni. Sami kafli verður lesinn úr íslensku þýðingunni.
Christina tekur svo þátt í pallborðsumræðum um vesturferðir, Vestur Íslendinga og innflytjendur nútímans. Voru vesturfararnir ævintýramenn eða svikarar við þjóð sína? Líta Íslendingar vesturfara fortíðar sömu augum og innflytjendur nútímans?
Föstudaginn 11.september kl. 17:00 opnar í Hoffmannsgalleríi sýning á teikningum unnum með nytsemi að leiðarljósi.
Teikningin er allt í kringum okkur í endalausum myndum og tilbrigðum. Fyrir utan hina listrænu notkun gegnir hún margskonar hlutverkum öðrum, svo sem undirbúnings- og hugmyndavinnu fyrir margvísleg verkefni, lýsing á hlutum og fyrirbærum og sem þáttur í ýmis konar leiðbeiningum og fyrirmælum. Mikilvægi vinnuteikningarinnar felst oft í því að í gegnum teikninguna er verkið úthugsað og þannig er teikningin fyrsta skrefið í framkvæmd hlutarins.
Samarendra Das á Íslandi - Fyrirlestur og kynning á „svartbók áliðnaðarins"
Reykjavíkur Akamdemíunni, Hringbraut 121, 4. hæð, miðvikudaginn 18. ágúst kl. 20:00.
Dagana 14. - 24. ágúst verður indverski rithöfundurinn, kvikmyndagerðarmaðurinn og aktífistinn Samarendra Das hér á landi, í annað sinn á vegum umhverfishreyfingarinnar Saving Iceland. Tilefni komu hans er útkoma nýrrar bókar hans og forleifafræðingsins Felix Padel, Out of This Earth: East India Adivasis and the Aluminium Cartel, sem er gefinn út af Orient Black Swan útgáfunni og mætti kalla „svartbók áliðnaðarins". Miðvikudaginn 18. ágúst kl. 20:00 verður Samarendra með fyrirlestur og kynningu á bókinni í Reykjavíkur Akademíunni, Hringbraut 121. Fleiri fyrirlestrar munu eiga sér stað annars staðar á landinu á meðan Samarendra er hér og verða þeir auglýstir síðar.
Umhverfisstefna ReykjavíkurAkademíunnar er strax farin að bera árangur.
Eftir að reykhúsinu var breytt í sólstofu er þar hafin ræktun á klifurbaunum, agúrkum, tómötum eggaldinum, kúrbít, chili og ýmsum kryddjurtum.
Einar Þorleifs og Erna á bókasafninu eru brautryðjendur í þessari ræktun og ennþá er pláss fyrir enn fjölbreyttari flóru frá áhugasömum demónum. Einnig má koma með munaðarlausar pottaplöntur í fóstur í sólstofuna.