Upplestur og pallborðsumræður um bókina "Freyjuginning" 1.júní
Rithöfundurinn Christina Sunley heimsækir ReykjavíkurAkademíuna
Upplestur og pallborðsumræður í ReykjavíkurAkademíunni, JL húsinu Hringbraut 121, 4. hæð, þriðjudaginn 1. júní kl 16:00.
Á síðustu bókavertíð kom út skáldsagan Freyjuginning, um litríkt fók af íslenskum ættum eftir bandaríska rithöfundinn Christinu Sunley. Hún kynnir bók sína og les upp úr henni. Sami kafli verður lesinn úr íslensku þýðingunni.
Christina tekur svo þátt í pallborðsumræðum um vesturferðir, Vestur Íslendinga og innflytjendur nútímans. Voru vesturfararnir ævintýramenn eða svikarar við þjóð sína? Líta Íslendingar vesturfara fortíðar sömu augum og innflytjendur nútímans?
Sólveig Ólafsdóttir framkvæmdastjóri er höfundur skýrslunnar. Í henni er ítarlegt yfirlit yfir starfsemi RA, daglegan rekstur, starfsmannahald og helstu rannsóknarverkefni innan RA. Einnig er í skýrslunni yfirlit yfir ráðstefnur og málþing sem haldin voru í ReykjavíkurAkademíunni á árinu 2010.
Í skýrslunni er einnig gerð grein fyrir starfsemi Félags ReykjavíkurAkademíunnar auk þess að helstu verkefni fræðimanna eru tíunduð í sérstöku fylgiskjali með skýrslunni.
Árið 2010 var ReykjavíkurAkademíunni rekstrarlega mjög þungt í skauti og einkenndist starfsemin af mikilli óvissu um hvort hún ætti einhverja framtíðarmöguleika. Í árslok leit jafnvel út fyrir að leggja þyrfti starfsemina niður á aðalfundi 2011 vegna rekstrarerfiðleika og húsnæðisvandræða. Það sem af er árinu eru horfurnar mun hagstæðari fyrir ReykjavíkurAkademíuna og munar þar mest um algera endurskipulagningu á rekstri, nýjan húsaleigusamning og síðast en ekki síst nýjan og metnaðarfullan styrktarsaming við mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Bókin Expansions: Competition and Conquest in Europe Since the Bronze Age eftir sagnfræðinginn Axel Kristinssoni er nú fáanleg á Kindle-formi í vefverslun Amazon (http://www.amazon.com/dp/B0070XD7QY). Nú er því hægt er að kaupa stafræna útgáfu og lesa á tölvu, spjaldtölvu eða öðrum tækjum sem geta notað Kindle.
Bókin, sem gefin er út af ReykjavíkurAkademíunni, fjallar á nýstárlegan hátt um útþenslur Grikkja, Germana, Víkinga og annarra og notar nálgun sem byggir á þróunarfræði og flækjufræði til að finna keimlíkar rætur þeirra (nánar: axelkrist.com).
Í Cliodynamics, sem er ritrýnt vísindatímarit sem gefið er út á vefnum, birtist nýlega ritdómur um bókina eftir David Christian, prófessor í sagnfræði við Macquarie háskóla í Sidney í Ástralíu.
Í lokaorðum sínum segir Christian: „Þetta er hrífandi bók sem ætti að vekja mikla og áhugaverða umræðu, jafnvel meðal sagnfræðinga sem láta ekki alveg sannfærast af meginröksemdum hennar.“
Expansions: Competition and Conquest in Europe Since the Bronze Age, by the Icelandic historian Axel Kristinsson is now available in Kindle format on Amazon (http://www.amazon.com/dp/B0070XD7QY). Readers can now buy a digital version of the book and read on a computer, tablet computer or other devices compatible with Kindle.
Published by the Reykjavik Academy, the book is an original examination of the expansions of the Greeks, Germanic peoples, Vikings and others where an approach based on the theories of complexity and evolution are used to find their similar roots (see also: http://axelkrist.com).
Recently, a review of the book by David Christian, professor of history at Macquarie University, appeared in Cliodynamics, a peer-reviewed scientific journal published on the World Wide Web.
Professor Christian concludes his review with these words: “This is a fascinating book that should provoke much interesting debate even among historians not entirely persuaded by its central arguments.”
Dalir og hólar 2010 - ferðateikningar- fyrirlestrar
Föstudaginn 8. október kl. 12:00-13:30 Í tengslum við sýningu Hoffmannsgallerís verða fluttir fyrirlestrarnir:
Auga ferðalangsins; Frá Eggert og Bjarna til Einars Garibalda
(Ólafur Gíslason, listfræðingur)
Þar fjallar Ólafur m.a. um ferðalög til Íslands, Ítalíu og Kína og um túlkanir I. Calvino, G. Bruno og Tizian á frásögnum af ferðalögum
Pelhjan, Biederman og innfæddir á veiðislóðum Kanada (Margrét Elísabet Ólafsdóttir, fagurfræðingur)
en erindi Margrétar fjallar m.a. um ferðalag tveggja listamanna á
norðurhjara í ágúst 2009.
Fyrirlestrarnir verða í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð
-
Umhverfisstefna í aksjón
Umhverfisstefna ReykjavíkurAkademíunnar er strax farin að bera árangur.
Eftir að reykhúsinu var breytt í sólstofu er þar hafin ræktun á klifurbaunum, agúrkum, tómötum eggaldinum, kúrbít, chili og ýmsum kryddjurtum.
Einar Þorleifs og Erna á bókasafninu eru brautryðjendur í þessari ræktun og ennþá er pláss fyrir enn fjölbreyttari flóru frá áhugasömum demónum. Einnig má koma með munaðarlausar pottaplöntur í fóstur í sólstofuna.