Mánudaginn 9. mars býður ReykjavíkurAkademían - félag sjálfstætt starfandi fræðimanna meðlimum sínum upp á kynningarnámskeið á svonefndum landsaðgangi að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Námskeiðið fer fram í sal ReykjavíkurAkademíunnar Hringbraut 121,4. h. og mun standa frá kl. 16 - 17:30.
Aðgangurinn er í gegnum vefslóðina hvar.is. og er opinn og endurgjaldslaus notendum sem eru tengdir vefnum í gegnum íslenskar netveitur. Hvar.is veitir aðgang að fullum texta greina úr fleiri en 14.000 tímaritum auk útdrátta úr greinum o.fl..
Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á heimasíðu RA, akademia.is, fyrir hádegi fimmtudaginn 5. mars. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður og því er mikilvægt að ganga frá skráningu sem fyrst. Þeir sem vilja og hafa tök á eru beðnir að koma með fartölvur sínar korteri fyrir upphaf námskeiðs til að ganga frá nettengingum.