Monthly View
Monthly View
Flat View
Flat View
Weekly View
Weekly View
Daily View
Daily View
Categories
Categories
Search
Search

Event: 'Gammablossar: Samfélagsleg ábyrgð viðskiptalífsins. - Hugleiðing um bankahrun og Milton Friedman'

Gammablossar
Gammablossar er fyrirlestraröð í ReykjavíkurAkademíunni. Fyrirlestrarnir fara fram fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá klukkan 12.05-13.00
Date: Wednesday, April 08, 2009 At 12:05
Duration: 55 Minutes
Contact Info:
Sigurður Gylfi Magnússon
Email: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
URL:

Salvör Nordal flytur fyrirlesturinn „Samfélagsleg ábyrgð viðskiptalífsins. - Hugleiðing um bankahrun og Milton Friedman." Fyrirlesturinn hefst klukkan 12.05 og stendur yfir í tæpan klukkutíma.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um kenningu Friedmans þess efnis að eina skylda viðskiptalífsins við samfélagið sé að hámarka hagnað. Þessi hugmynd Friedmans hefur verið mjög áhrifamikil í viðskiptalífinu, sérstaklega hin síðari ár - eins og berlega hefur komið í ljós að undanförnu. Í fyrirlestrinum verða reifuð helstu andmæli við þessa kenningu Friedmans auk þess sem því verður haldið fram að hún gangi gegn sjónarmiðum hans og annarra ný-frjálshyggjumanna um að lágmarka eigi þann lagaramma sem viðskiptalífinu sé búinn og hlutur ríkisvaldsins eigi að vera sem minnstur.


Search Calendar

Powered by