Email:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
URL:
Miklar breytingar hafa orðið á íslensku samfélagi í kjölfar efnahagshrunsins og áherslur í menningarstefnu opinberra aðila hafa verið til umræðu í því samhengi. Spurningar vakna um fjármuni til reksturs menningarstofnana, viðfangsefni menningarstefnu og meinta stefnu eða stefnuleysi stjórnvalda í menningarmálum. Því er tímabært að taka stöðuna á menningarmálunum, bera saman nýlegar rannsóknir á opinberri menningarstefnu á Íslandi í samanburði við aðrar þjóðir og velta upp spurningum um framtíðina.