Undanfarnar vikur og mánuði hefur farið fram lífleg umræða um ótal hliðar þeirrar kreppu sem nú geisar. Umræðan hefur víða verið
málefnaleg, en einnig mótast af hagsmunagæslu, vanþekkingu og slagorðum. ReykjavíkurAkademían hrindir nú af stað fyrirlestraröð í þeim tilgangi að varpa fræðilegu ljósi á ýmsar grundvallarspurningar sem tengjast efnahagshruninu sem hætta er á að verði að víðtæku samfélagshruni.
Fenginn verður einn fyrirlesari til að hafa framsögu. Síðan munu valdir sérfræðingar fengnir til að spyrja gagnrýninna spurninga um efnið fram
að kaffihléi en eftir hlé verða almennar fyrirspurnir og umræður.
Date: Thursday, May 28, 2009 At 17:00
Duration: 3 Hours
Contact Info:
Viðar Hreinsson
Email:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
URL:
Annar alþýðufyrirlestur ReykjavíkurAkademíunnar verður haldinn fimmtudaginn 28. maí kl. 17:00. Að þessu sinni mun Hrund Gunnsteinsdóttir, verkefnastjóri Prisma, segja frá hugmyndafræði námsins, aðferðum og árangri.