|
|
|||
|
Date: Friday, November 06, 2009 At 08:00
Duration: 1 Hour
|
||
|
Dagana 15.-16. nóvember nk. verður haldin ráðstefna í Skálholtsskóla undir yfirskriftinni Sjálfsmynd þjóðar. Ætlunin er að fjalla um þjóðarhugtakið, sjálfsskilning þjóðar og sjálfsmynd. Ætlunin er að líta til baka yfir farinn veg, en einnig horfa til nútíðar og ekki síður framtíðar. Reykjavíkurakademían, tímaritið Glíman og Skálholtsskóli hafa kallað saman þverfaglegt teymi sérfræðinga til að fjalla um málið út frá ólíkum sjónarhornum, m.a. frá sjónarhorni guðfræði, mannfræði, þjóðfræði, sagnfræði, lögfræði, bókmenntafræði, stjórnmálafræði og heimspeki. Dagskráin hefst á sunnudag kl. 15.30 og henni lýkur um kaffileitið á mánudag. Allt áhugafólk er boðið velkomið. Fullt verð með gistingu og fæði er kr.: 10.500.- DAGSKRÁ: Sunnudagur (15.11) Kl. 15.00-15.30 Kaffi Kl. 15.30-18.30 Fyrirlestrar (1. hluti)
Kl. 18.30-19.30 Matur Kl. 19.30-21.30 Fyrirlestrar (2. hluti)
Mánudagur (16.11) Kl. 08.00-09.00 Morgunmatur Kl. 09.00-12.00 Fyrirlestrar (3. hluti)
Kl. 12.00-13.00 Matur Kl. 13.00-15.00 Fyrirlestrar (4. hluti)
Kl. 15.00 Kaffi |
|||
|
||