January 2012 February 2012 March 2012
Su Mo Tu We Th Fr Sa
Week 5 1 2 3 4
Week 6 5 6 7 8 9 10 11
Week 7 12 13 14 15 16 17 18
Week 8 19 20 21 22 23 24 25
Week 9 26 27 28 29



svartkot.jpg

inor.jpg

RSS

Stúdentastofa Reykjavíkur

reykjavikurborg.png

lg rastort.jpg

 

 


ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg kynna -

 

Stúdentastofu Reykjavíkur og Reykjavíkurstyrk Akademíunnar

Aðstaða til verkefnavinnu og rannsóknarstyrkur

ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg auglýsa eftir umsóknum frá háskólastúdentum í framhaldsnámi um vinnuaðstöðu án endurgjalds við rannsóknarverkefni sem tengjast borginni og borgarfræðum almennt.

Vinnuaðstaðan er innan ReykjavíkurAkademíunnar við Hringbraut og er veitt endurgjaldslaust til þriggja mánaða. Boðið er upp á aðstöðu fyrir allt að 6 háskólastúdenta og taka þeir þátt í starfsemi Akademíunnar á þeim tíma.

Jafnframt óska Reykjavíkurborg og ReykjavíkurAkademían eftir umsóknum um rannsóknarstyrk að upphæð kr. 500.000 til rannsóknarverkefnis með hagnýtt gildi fyrir Reykjavíkurborg. Rannsóknarstyrkurinn er veittur einum háskólastúdent í Stúdentastofu Reykjavíkur og er þáttur í gildandi samstarfssamningi ReykjavíkurAkademíunnar og Reykjavíkurborgar.

Samráðsnefnd á vegum Reykjavíkurborgar og ReykjavíkurAkademíunnar metur umsóknirnar.

Vinsamlega sendið umsóknir um aðstöðu og rannsóknarstyrk með ferilskrá á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it fyrir 15. september næstkomandi.

 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)