April 2012 May 2012 June 2012
Su Mo Tu We Th Fr Sa
Week 18 1 2 3 4 5
Week 19 6 7 8 9 10 11 12
Week 20 13 14 15 16 17 18 19
Week 21 20 21 22 23 24 25 26
Week 22 27 28 29 30 31

slogo1.gif



svartkot.jpg

inor.jpg

RSS

Stúdentastofa

STÚDENTASTOFA REYKJAVÍKURAKADEMÍUNNAR
studentastofa.png
ReykjavíkurAkademían býður háskólanemum í framhaldsnámi (meistara- eða doktorsnámi) í félags- og hugvísindum tímabundna vinnuaðstöðu í svonefndri Stúdentastofu í húsakynnum Akademíunnar að Hringbraut 121 í Reykjavík á mjög góðu verði eða krónur 6.000.- á mánuði, þjónustugjöld innifalin, fyrir tímabilið 1. janúar 2012 til 30. apríl 2012.

Í boði er skrifborð í skrifstofu með öðrum auk aðgangs að sameiginlegum rýmum Akademíunnar; eldhúsi, fundarherbergi og fyrirlestrasal. Þráðlaus nettenging er í húsinu, sem og ljósritunarvél, faxtæki  og skanni, auk þess sem bókasafn Dagsbrúnar er þar til afnota.  ReykjavíkurAkademían er kraftmikið fræðasamfélag þar sem má finna fjölda fræðimanna, ungra jafnt sem þrautreyndra, á fjölmörgum sviðum hug- og félagsvísinda. Í upphafi dvalar er reiknað með að styrkþegar kynni verkefni sín fyrir fræðimönnum RA.

Stúdentaaðstaðan er hugsuð sem fjögurra mánaða dvöl fyrir hvern umsækjanda. Auglýst er eftir umsóknum fyrir vorönnina, en næsta tímabil á árinu 2012 er 1. maí til 31. ágúst og það síðasta frá 1. september til 31. desember. 

Að lokinni fjögurra mánaða dvöl geta stúdentar sótt um annað skrifstofupláss innan ReykjavíkurAkdemíunnar á almennu verði.

Umsóknir sendist ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 107 Reykjavík, eða í tölvupósti:  This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it . Ekki eru notuð sérstök eyðublöð en umsækjendur eru beðnir að tilgreina stuttlega viðfangsefni sín, fræðasvið, hvar þeir eru í námi og áætluð námslok auk almennra upplýsinga. Umsóknir skulu berast í síðasta lagi mánudaginn 19. desember og mun niðurstaða úthlutunarnefndar liggja fyrir áður en jólahátíð gengur í garð.

Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Hrafn í síma 562 8561 eða um netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)