| ÁLYKTUN UM VELFERÐ GAGNRÝNNA ÍSLENDINGA |
|
Stjórnir Hagþenkis, Rithöfundasambands Íslands, Bandalags þýðenda og túlka, Reykjavíkur Akademíunnar, Blaðamannafélags Íslands og PEN á Íslandi vilja af gefnu tilefni minna á eftirfarandi:
Einn af hornsteinum stjórnarskrár Íslands er óskoraður réttur borgaranna til þátttöku í opinni samfélagsumræðu á fundum, í dagblöðum, á netsíðum, ljósvakamiðlum eða í bókum.
Allar tilraunir flokka, stofnanna, fyrirtækja eða einstaklinga til þess að þagga niður í höfundum texta sem birta skoðanir sem þeim eru eru andstæðar – t.d. með skipulögðum atlögum að velferð höfundar, lögsóknum, hótunum um atvinnumissi eða mannorðsmeiðingum sem grafa undan öryggi hans – eru jafnframt aðför að sjálfu tjáningarfrelsinu.
Þyki hópum eða einstaklingum að sér vegið í ræðu eða riti, þá stendur þeim til boða, nú sem fyrr, að svara fyrir sig með sama hætti. Það kallast skoðanaskipti – jafnvel ritdeilur – og er siðaðra manna háttur í löndum þar sem lýðréttindi ríkja.
Sjón – Sigurjón Birgir Sigurðsson formaður PEN á Íslandi, This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands, 568 3190, 861 9509 Jón Yngvi Jóhannsson formaður Hagþenkis, 820 0871 Sölvi Björn Sigurðsson formaður Bandalags þýðenda og túlka, 695 1235 Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands, 553 9155/568 3155 Sólveig Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Reykjavíkur Akademíunnar, 562 856/892 1215 |









