|
ReykjavíkurAkademían var stofnuð 7. maí 1997. Þann 31. mars 2006 var sett á fót sjálfseignarstofnunin ReykjavíkurAkademían ses í kringum rekstur fræðaseturs sjálfstætt starfandi fræðimanna í JL húsinu við Hringbraut. Félag ReykjavíkurAkademíunnar starfar áfram sem bakhjarl sjálfseignarstofnunarinnar ásamt því að vera vettvangur sjálfstætt starfandi fræðimanna.
ReykjavíkurAkademían hefur 57 skrifstofur, frá 7- 25 m2 að stærð, á sínum vegum sem félagar í RA geta leigt til lengri eða skemmri tíma. Mörgum deila tveir eða fleiri en ríflega helmingur skrifstofanna hentar best fyrir einn.
Innifalið í leigu á skrifstofu og fyrirtaks rannsóknaaðstöðu er eftirfarandi:
– Aðgangur að þjónustuveri, netinu, rafmagni, hita og Bókasafni Dagsbrúnar. – Aðgangur að sameiginlegum rýmum, fundaherbergi og ráðstefnusal án endurgjalds. – Þátttaka í fjölfaglegu samstarfi. – Þátttaka í gerð námskeiða, útgáfu og mótun ráðstefna. – Faglega og félagslega hvetjandi umhverfi. – Möguleiki á að sækja um framlag úr þeim sjóðum sem ReykjavíkurAkademían kann að hafa yfir að ráða hverju sinni til að styrkja einstök verkefni. – Möguleiki á kennslu á háskólastigi og öðrum verkefnum sem ReykjavíkurAkademían tekur að sér.
Til að sækja um skrifstofu þarf að fylla út eyðublaðið, Vinnuaðstaða hér til vinstri. Athugið að aðeins félagar í ReykjavíkurAkademíunni geta fengið vinnuaðstöðu. Upplýsingar um félagið og félagsaðild er að finna á slóðinni http://akademia.is/index.php/is/felagar Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Akademíunnar. Skrifstofan er opin virka daga frá kl 10-13, s. 562 8561, netfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Stjórn sjálfseignarstofnunarinnar, ReykjavíkurAkademíunnar ses, sem kjörin var á aðalfundi 2008, er skipuð eftirfarandi:
Clarence E. Glad, formaður
Davíð Ólafsson, varaformaður
Steinunn Kristjánsdóttir, gjaldkeri
Kristinn Schram og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, meðstjórnendur.
Sólveig Ólafsdóttir, varamaður og ritari og Þorgerður Þorvaldsdóttir,varamaður
Starfsfólk ReykjavíkurAkademíunnar er:
Viðar Hreinsson, framkvæmdastjóri
Ásthildur Valtýsdóttir, skrifstofumær
Tómas Ponzi, húsvörður
Didda, kaffiuppáhellingar og létt þrif.
|