Tilboð til félaga


Félagar fá bókina


Andlitsdrættir samtíðarinnar eftir Hauk Ingvarsson,
er nú á sérstöku tilboði til félaga,
kostar nú kr. 2.140.

eða helming af upphaflegu söluverði.

Hægt er að panta bókina með tölvupósti, ra@akademia.is
og fá hana senda og bætist þá 190 kr sendingarkostnaður við.
Einnig er hægt að nálgast bókina á skrifstofu RA


Aðalfundur 16. apríl
Aðalfundur ReykjavíkurAkademíunnar, Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna, verður haldinn föstudaginn 16. apríl kl. 16:00 í fundarsal félagsins að Hringbraut 121, 4. hæð. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins og stjórnarkjör.
Read more...
 
Útgáfufagnaður 22. maí

Bókin Fræðimenn í flæðarmáli. Saga ReykjavíkurAkademíunnar eftir dr. Árna Daníel Júlíusson sagnfræðing kemur út föstudaginn 22. maí. Útgáfunni verður fagnað þann dag kl. 16:30 með viðeigandi hætti í fundarsal ReykjavíkurAkademíunnar.

Tónlist - ávörp - kynning á starfi ReykjavíkurAkademíunnar - léttar veitingar.

Félagar í RA geta keypt bókina á sérstöku tilboðsverði, kr. 3.500. Allir félagar velkomnir.

 
Árshátíð ReykjavíkurAkademíunnar
Ágætu félagar í ReykjavíkurAkademíunni.
NÚ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ

Árshátíð ReykjavíkurAkademíunnar
verður haldin í Rafveituhúsinu í Elliðaárdal miðvikudagskvöldið 29. apríl næstkomandi.

Smellið hér fyrir skráningu

Read more...
 
Námskeið í Google vefpósti

ReykjavíkurAkademían býður félögum sínum á námskeið í notkun Google- vefpóstsins þriðjudaginn 7. apríl klukkan 16.00. Google vefpóstur er af mörgum talinn bera höfuð og herðar yfir önnur póstforrit og nú gefst félögum í ReykjavíkurAkademíunni tækifæri til að kynnast forritinu og læra að nota það.

Read more...
 
Hvað er hvar.is?

Mánudaginn 9. mars mun ReykjavíkurAkademían - félag sjálfstætt starfandi fræðimanna bjóða meðlimum sínum upp á kynningarnámskeið á svonefndum landsaðgangi að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Námskeiðið fer fram í sal ReykjavíkurAkademíunnar Hringbraut 121,4. h. og mun standa frá kl. 16 - 17:30.

Aðgangurinn er í gegnum vefslóðina hvar.is. og er opinn og endurgjaldslaus notendum sem eru tengdir vefnum í gegnum íslenskar netveitur.
Hvar.is veitir aðgang að fullum texta greina úr fleiri en 14.000 tímaritum auk útdrátta úr greinum o.fl..

Birgir Björnsson, umsjónarmaður landsaðgangs og starfsmaður Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns mun kynna landsaðganginn og möguleika hans við öflun fræðilegra heimilda.

Akademónar nær og fjær eru eindregið hvattir til að nýta sér tækifærið til að skerpa á þekkingu sinni og færni við það frábæra tæki til vísinda og
fræðistarfa sem landsaðgangurinn er. Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á heimasíðu RA, akademia.is, fyrir hádegi fimmtudaginn 5. mars. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður og því er mikilvægt að ganga frá skráningu sem fyrst. Þeir sem vilja og hafa tök á eru beðnir að koma með fartölvur sínar korteri fyrir upphaf námskeiðs til að ganga frá nettengingum.

Smellið hér til að skrá ykkur á námskeiðið.


 
<< Start < Prev 1 2 Next > End >>

Page 1 of 2
Icelandic (IS)English (United Kingdom)