|
Björn S. Stefánsson |
|
|
|
551 1527 |
|
Menntun: Stúdent frá MR 1956. Búfræðingur frá Bændaskólanum á Hólum 1957. Sivilagronom frá Norges landbrukshögskole 1961. Dr. scient. frá sama skóla 1968. Dómtúlkur og skjalaþýðandi úr og á norsku, 1977. Leiðsögumannsréttindi, 1980.
Starfsferill: Ritstjóri Búnaðarblaðsins 1961 til 1962. Vísindaleg aðstoð við Norges landbrukshögskole 1965 til 1968. Kennari í framhaldsdeild Bændaskólans á Hvanneyri 1968. Deildarstjóri á Hagstofu Íslands 1968 til 1976. Prófessor við Nordplan, stofnun Norðurlanda í skipulagsfræðum, 1978. Lausamaður við rannsóknir, greinargerðir, þýðingar, kennslu, leiðsögn, fararstjórn og ráðgjöf, búsettur í Reykjavík.
Önnur störf: Formaður Félags íslenskra búfræðikandídata 1971 til 1973. Ritari, síðar formaður Félagsvísindafélags Íslands 1972 til 1975. Í stjórn Íslandsdeildar Norræna sumarháskólans 1973 til 1975. Fulltrúi Íslands í stjórn hagfræðiskorar Norræna búfræðifélagsins 1975 til 1983. Í stjórn Íbúasamtaka Vesturbæjar, síðast formaður, 1979 til 1981. Ritari í stjórn Félags þjóðfélagsfræðinga 1979 til 1981. Fulltrúi Íslands í norrænum samstarfshópi um þróun landsbyggðar 1980 til 1983. Fulltrúi Íslands í stjórn Nordplan 1981-1993.
Ritstörf: Þjóðfélagið og þróun þess, 1978; Hjáríki, 1992. Fjöldi ritsmíða, fræðilegra og alþýðlegra, í blöðum og tímaritum.
Viðurkenning: Kjörinn í Vísindafélag Norðmanna 1991. |
|
|
|
|
|