Smelltu á stafina hér að neðan til að finna félaga eftir stafrófsröð

A
- Á - B - C - D - E - F - G - H - I - Í - J - K - L - M - N - O - Ó - P - R - S - T - U - Ú - V - Y - Ý - Þ - Æ - Ö
Hulda Proppé
Mannfræði

Contact

Information: Hulda Proppé hefur unnið að rannsóknum og kennslu í mannfræði frá árinu 1996. Hún útskrifaðist með mastersgráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands í febrúar 2002 og með BA í mannfræði 1997. Hulda stundaði hluta af mastersnámi sínu við University of Minnesota í Bandaríkjunum. Að mastersnámi loknu vann hún að rannsóknum á kynferði á heimskautasvæðinu með áherslu á nýtingu náttúruauðlinda. Á árunum 1999-2004 var hún stundakennari í mannfræði við Háskóla Íslands. 2004-2005 starfaði hún við rannsóknir sem sérfræðingur hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Hulda hefur gefið út og haldið fyrirlestra um efni tengt rannsóknum sínum á Íslandi sem og erlendis. Frá október 2005 hefur hún stundað doktorsnám í mannfræði við mannfræðideildina við University of Cambridge í Bretlandi og er meðlimur í Girton College. Veturinn 2006-2007 var Hulda gistifræðimaður við Columbia University, NY, og Harvard University, Cambridge, MA. Doktorsverkefni Huldu fjallar um bandaríska sérfræðinga sem stunduðu rannsóknir á Sovíetríkjunum meðan kalda stríðið stóð, hugmyndir um óvini og hlut valds, þekkingar og pólitíkur í því hugmyndaferli.

Ferilskrá

CV in English


 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)