|
Jón Rúnar Sveinsson |
Félagsfræðingur
|
|
|
|
|
Álfhólsvegur 137c |
|
220 Kópavogur |
|
564 1141 |
|
845 89 17 |
|
Jón Rúnar Sveinsson fæddist á Seyðisfirði 1951 og ólst þar upp til 9 ára aldurs, þá fluttist hann ásamt móður sinni upp á Fljótsdalshérað og átti þar heima til 16 ára aldurs, er hann fluttist til föður síns í Reykjavík og hóf menntaskólanám við MH.
Eftir menntaskólanám 1971 hóf hann nám við nýstofnaða Námsbraut í almennum þjóðfélagsfræðum við HÍ. Árið 1975 lauk hann BA-prófi í félagsfræði með lokaritgerð um leigumarkaðinn í Reykjavík, sem byggði á viðtalskönnun við 144 leigjendur og hófst þar með rannsóknaferill á sviði húsnæðismála sem enn stendur.
Jón Rúnar stundaði framhaldsnám við félagsfræðideild Háskólans í Lundi 1975-1981. Þar tók hann þátt í ýmsum rannsóknarverkefnum, því viðamesta um á aðstæður fólks í nýjum einbýlishúsahverfum á Malmö/Lundar-svæðinu í Suður-Svíþjóð. Einnig tók hann þátt í gerð stórrar könnunar á húsnæðisaðstæðum á Reykjavíkursvæðinu árið 1979.
Eftir heimkomu til Íslands 1981 hóf Jón Rúnar störf hjá Húsnæðisstofnun ríkisins við upplýsingavinnslu og rannsóknir. Hann var á meðal þeirra sem stóðu að stofnun Húsnæðissamvinnufélagsins Búseta árið 1983 og var fyrsti formaður þess félags á árunum 1983-1986. Einnig var hann virkur á árunum 1987-1990 í starfi Útvarps Rótar og stjórnarformaður Rótar h/f 1988-1990, er rak þá útvarpsstöð.
Jón Rúnar starfaði sem sérfræðingur hjá Húsnæðisstofnun ríkisins 1982-1999, Íbúðalánasjóði 1999-2001 og Borgarfræðasetri Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar 2001-2005. Á þessum árum tók hann þátt í fjölda rannsóknarverkefna á sviði húsnæðismála og kynnti rannsóknargreinar á ráðstefnum eða birti í erlendum fræðitímaritum og safnritum. Einnig ritaði hann um 300 almennar greinar og pistla um húsnæðismál í dagblöð og tímarit hér heima.
Árið 1999 lauk Jón Rúnar Phil Lic prófi frá félagsfræðideild Háskólans í Uppsölum, eftir að hafa starfað samtals tæpt ár sem gistifræðimaður hjá Institutet för bostads- och urbanforskning vid Uppsala Universtitet.
Eftir að Borgarfræðasetur var lagt niður 2005 hefur Jón Rúnar verið sjálfstætt starfandi fræðimaður í ReykjavíkurAkademíunni, sinnt bókavörslu í Bókasafni Dagsbrúnar um 6 mánaða skeið og starfað 18 mánuði hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst. Er nú, frá áramótum 2008/2009, aftur sjálfstætt starfandi í ReykjavíkurAkademíunni.
Foreldarar Jóns Rúnars eru Hallveig F. Guðjónsdóttir (fædd 1923 að Heiðarseli í Jökuldalsheiði), fyrrum húsfreyja að Dratthalastöðum í Hjaltastaðarþinghá og Sveinn Ólafsson (fæddur 1924 á Borðeyri), fyrrum vélstjóri í Áburðarverksmiðju ríkisins. Jón Rúnar á fjögur hálfsystkini sammæðra og eina hálfsystur samfeðra. Kona hans er Valgerður Árnadóttir, grunnskólakennari við Breiðagerðis- og Hvassaleitisskóla og eiga þau þrjú uppkomin börn og fjögur barnabörn.
Á eftirfarandi vefslóð má sjá ítarlegar upplýsingar um fræðastörf Jóns Rúnars, menntun og starfsferil.
Vefur Háskólans á Bifröst
Greinasafn Jóns Rúnars má sjá hér: http://www.borg.hi.is/jrgreinasafn.htm (að mestu greinar ritaðar í Fasteignablað Morgunblaðsins 2000-2004)
Sjá einnig: Vefur Snöru, vefbókasafns
|
|
|
|