|
Jón Viðar Jónsson |
Forstöðumaður Leikminjasafns Íslands
|
|
|
|
Jón Viðar Jónsson er fæddur í Reykjavík 7. júlí 1955. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1975 og fil. kand. prófi í leikhúsfræði, sagnfræði og heimspeki frá Stokkhólmsháskóla árið 1978. Hann gegndi starfi leiklistarstjóra Ríkisútvarps frá 1982 til 1991. Hann lauk fil.lic.prófi í leikhúsfræði frá Stokkhólmsháskóla árið 1992 og doktorsprófi frá sama skóla árið 1996.
Jón Viðar hefur um langt árabil stundað margvísleg fræðistörf á sviði íslenskrar leiklistarsögu og leikbókmennta. Hann hefur einnig birt leiklistargagnrýni í útvarpi, sjónvarpi og blöðum, nú síðast í DV. Doktorsritgerð hans fjallaði um starf Stefaníu Guðmundsdóttur leikkonu og Leikfélags Reykjavíkur á fyrstu áratugum þess, en upp úr henni samdi hann alþýðlega ævisögu Stefaníu, Leyndarmál frú Stefaníu (1997). Þá hefur hann gefið út heildarsöfn leikrita Jökuls Jakobssonar (1994) og Guðmundar Steinssonar (2003) og ritstýrt ritröðinni Safn til sögu íslenskrar leiklistar og leikbókmennta. Nýjasta verk hans er rit um skáldskap Jóhanns Sigurjónssonar, Kaktusblómið og nóttin (2004). Hann var ráðinn forstöðumaður Leikminjasafns Íslands við stofnun þess árið 2003. |
|
|
|
|
|