|
Sesselja G. Magnúsdóttir |
Dansfræði
|
|
|
|
(354) 8677821 |
|
Sesselja stundar nú MA nám í dansfærðum við Stokkhólmsháskóla og kennir listdanssögu við Listdansskóla Íslands. Hún lauk BA-Honours námi í dansi frá Deakin University í Melbourne 1998. BS-prófi í íþróttafræðum og dansi frá Kaupmannahafnarháskóla 1997. BA-prófi í sagnfræði frá HÍ 1993. Sesselja hefur tekið þátt í fjölda dansnámskeiða, bæði erlendis og hér á landi. Hún hefur tekið að sér ýmis félagsstörf s.s. verið fulltrúi Íslands í stjórn NOFOD (Nordisk forum for dansforskning) og ritari í stjórn Íslenska dansfræðafélagsins. Það hafa birst greinar eftir hana í Tímariti Máls og menningar, dansgagnrýnir í DV og greinar í íslenskum og erlendum ráðstefnuritum. Sesselja hefur einnig kennt dans í grunnskóla bæði í Hafnafirði og Reykjavík. |
|
|
|
|
|