Smelltu á stafina hér að neðan til að finna félaga eftir stafrófsröð

A
- Á - B - C - D - E - F - G - H - I - Í - J - K - L - M - N - O - Ó - P - R - S - T - U - Ú - V - Y - Ý - Þ - Æ - Ö
Viðar Hreinsson
Bókmenntafræðingur / Neftóbaksfræðimaður

Contact
Address:
Hringbraut 121, 107, Reykjavík

Telephone: 562 8565
Mobile Phone Number: 844 8645

Information: Viðar Hreinsson er bónasonur úr Eyjafirði sem býr í vesturbænum í Reykjavík. Hann lagði stund á nám í íslensku við Háskóla Íslands og hélt síðan í framhaldsnám í bókmenntum til Kaupmannahafnar. Á tímabili kenndi hann við íslenskudeildina í Winnipeg í Kanada, síðar leysti hann glæsilega af hendi ritstjórn á heildarútgáfu Íslendingasagna á ensku en á síðustu ár hefur hann helgað starfskrafta sína rannsóknum á ævi og verkum Stephans G. Stephanssonar. Þær rannsóknir leiddu hann til móts við Bjart en hjá forlaginu gaf hann út viðamikla ævisögu Stephans í tveimur bindum. Fyrra bindið var tilnefnt til íslensku bókmenntaverðlaunanna og eftir útgáfu síðara bindisins fékk Viðar Viðurkenningu Hagþenkis fyrir frábæra fræðimennsku. Viðar er skemmtilega samsettur maður, með annan fótinn í rótgrónum veruleika íslenskrar alþýðumenningar en með hinn fótinn í nútímaheimi bókmenntakenninga og náttúruverndar. Á ýmsan hátt svipar honum til Stephans G., sem var íhaldssamur framúrstefnuhugsuður, raungóður og traustur, en stóð þó jafnan fastur á sínu þótt á móti blési.

Ferilskrá


 














Icelandic (IS)English (United Kingdom)