Yfirlit
Ég er löggiltur sálfræðingur, með
B.A. Hons., M.Sc. í sálfræði frá
Bretlandi og dr. phil. frá Svíþjóð
(sbr. Menntun á
háskólastigi).
Ég hafði til ársins 2009 stöðu
rannsóknadósents (s.
forskare, e. associated
research professor) við sálfræðideild
Háskólans í Lundi í Svíþjóð.
Þar var ég m.a. forstöðumaður fræðaseturs
(forskningscentrum) og fyrir hópi sérfræðinga
og doktorsnema við rannsóknir á
öryggi barna og unglinga. Ég
starfaði einnig við atferlisvísindadeild
háskólans í Kristianstad í Svíþjóð,
þar sem ég var stjórnandi rannsóknarverkefnis
um orsakir og áhrif dauðaslysa og sjálfsvíga
á sænsku járnbrautunum (sjá Störf).
Áður var ég einnig til
margra ára lektor í sálfræði og
uppeldisfræði við Háskólann í
Halmstad, og hef starfað sem skólasálfræðingur
á Íslandi og í Svíþjóð.
Á árunum 2009 til 2010 starfaði ég sem
forstöðumaður Fræðaseturs Háskóla
Íslands á Austurlandi.
Ég hef á undanförnum árum verið
fræðilegur ráðgjafi í samvinnuverkefnum á
sviði umferðarfræðslu á evrópskum
vettvangi, og er fulltrúi Íslands í norrænum
samtökum um umferðarsálfræði, NORBIT
(Nordic Organization for Behaviour in
Traffic). Ég átti
frumkvæði að því, að önnur
vísindalega ráðstefna samtakanna var haldin í
Reykjavík í ágúst 2008, og var ég
formaður undirbúningsnefndar. Ég er auk þess
meðlimur í ýmsum samtökum um þróunarsálfræði
og umferðarsálfræði, hef haldið fyrirlestra
á ýmsum alþjóðaráðstefnum
og birt greinar í alþjóðlegum tímaritum
um þessi efni (sjá Önnur vísindaleg störf
og verkefni).
Ég var frá 2007 til 2008 ráðgjafi
starfshóps samgönguráðuneytisins um framtíð
umferðarfræðslu í skólum, og skilað
lokaskýrslu um þetta efni til ráðuneytisins í
árslok 2008.
Ég hef á undanförnum 15 árum starfað á
Íslandi í ýmsum verkefnum í tengslum við
menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti,
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands,
Geðdeild háskólasjúkrahúss,
Umferðarráð og Umferðarstofu,. Meðal útgefins
efnis á íslensku er Umferðarfræðsla
í skólum (2008/2009)
og Öryggi barna í umferðinni
- Slys og fræðsla (2006). Ýmislegt annað
efni hefur verið unnið og aðrar skýrslur birtar
með öðrum sérfræðingum (sjá
Ritverk).
Ég starfa nú tímabundið í hópi
sérfræðinga að skýrslu um
umferðarmenningu á Íslandi í framtíðinni.
Reykjavík, í júní 2011
Háskólamenntun
B.A. Honours
í sálfræði,
University of Wales, U.C.N.W., Bangor, U.K., 1969.
M.Sc. í
tilraunasálfræði, University
of Wales, U.C.N.W., Bangor, U.K., 1975.
Diploma í kerfisfræði, Control
Data Institute, London, U.K., 1976.
Diploma í fjölskyldumeðferð, Psykologiska
institutionen, Lunds universitet, 1979.
Einstök próf í tölvun, einkum
gerfigreind, Institutionen för datalogi,
og tölfræði, Statistiska
institutionen, Lunds universitet, 1979 - 1984.
Filosofie doktorsexamen í
sálfræði,
Samhällsvetenskapliga fakulteten, Lunds universitet, 1987.
Löggilding sem sálfræðingur
á Íslandi,
Menntamálaráðuneytið, Reykjavík 1993, og
í Svíþjóð, Socialstyrelsen, Stockholm,
1994.
Oavlönad docent við
Samhällsvetenskapliga fakulteten, Lunds universitet, 1999.
Störf
Skólasálfræðingur,
Sálfræðideild skóla, Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur, 1971 - 1972.
Kennari í
sálfræði við Háskóla Íslands,
Reykjavík, 1972 - 1973.
Kennari í
sálfræði við Háskólann í
Lundi, Svíþjóð, 1978 - 1985.
Sérfræðingur
í ýmsum
rannsóknarverkefnum:
Þróun
tölvuvæddra vinnustaða, Televerket, Malmö, 1980
– 1983
Vinnuhagræðing
í samhæfðri fjarskiptavinnu, Telia, Stockholm, 1986
– 1990
Vinnuhagræðing
og skipulagning í leikskólageira, Lomma kommun, 1994 –
1995.
Rannsóknarmaður
við Umferðarverkfræðideild Tækniháskólans
í Lundi, 1985 - 1987.
Lektor
í sálfræði og kennslufræði við
Háskólann í Halmstad, Svíþjóð,
1988 - 1993.
Forstöðumaður
Centrum för forskning om
barns utveckling við
Háskólann í Halmstad, 1989 - 1993.
Rannsóknardósent
í sálfræði við Háskólann í
Lundi, 1991- 1994.
Skólasálfræðingur,
Lomma kommun, Svíþjóð, 1994 - 1995.
Rannsóknardósent í sálfræði
við Háskólann í Lundi, frá
og með árinu 1996.
Forstöðumaður Centrum för forskning om
barn och trafik við Háskólann í Lundi,
1996 – 2000, og eftir það Enheten för risk-
och trafikpsykologi við Háskólann
í Lundi, 2000 – 2006.
Sérfræðingur til aðstoðar starfshópi
samgögnguráðuneytisins um umferðarfræðslu
í skólum, 2007 – 2008,
og höfundur skýrslu um umferðarfræðslu
barna og unglinga.
Forstöðumaður Fræðaseturs Háskóla
Íslands á Austurlandi, Egilsstöðum, 2009
– 2010.
Önnur fræðistörf
Fakultetsopponent við Filosofiae
Licentiatus próf í
Umhverfissálfræði,
Arkitektursektionen, Tekniska högskolan, Lunds universitet,
1997.
Member of the group of examiners at the defence
of
Filosofiae Licentiatus
thesis in Cognitive Science,
Filosofiska institutionen, Lunds universitet, 1999
Filosofiae doctor
thesis in Cognitive Science,
Filosofiska institutionen, Lunds universitet, 2001.
Scientific opponent (Kommentator)
at a final seminar before the defence of a doctoral thesis (Fil.
Dr.), Institutionen för
psykologi, Lunds universitet, 2003.
Scientific advisor in a cooperative
project on traffic eduction in schools in Europe
(European Commission, 2004). Author of an open letter to the
traffic committee of the Swedish Government (Trafikutskottet),
together with eight other experts on traffic safety, 2004. Scientific
advisor (2004 - 2005) to the Icelandic Department of
Communication on the traffic safety plan to the year 2012. Author
of reports to the Icelandic Department of Communication and
Department of Education on a planned revision of traffic
eduction within the Icelandic school system, 2004 - 2009.
Expert reviewer for various international
journals: Psychological Science, Journal of Child
Psychology and Psychiatry and Allied Disciplines, Learning
and Individual Differences, Journal of Pediatric Psychology, Accident
Analysis and Prevention, and Perceptual
and Motor Skills.
Expert reviewer for The
Research Grants Board, (large grant
applications), Economic and Social
Research Council in Britain, and for
RANNÍS,
(grant applications), in Iceland.
Author of articles in international journals with peer review, such
as the Journal of Pediatric Psychology, Behaviour, International
Journal of Behavioral Development, Ergonomics og
Human Factors.
Participant and speaker at many international conferences in
developmental, educational, traffic, and work psychology, as well as
ethology, cognition and cognitive science.
Member of Sálfræðingafélag
Íslands, Sveriges Psykologförbund, International Society
for the Study of Behavioural Development,
International Association for Applied
Psychology, European
Society for Developmental Psychology, International Traffic
Medicine Association, Europe Chapter of the Human Factors and
Ergonomics Society, and the Nordic
Organisation for Behaviour In Traffic
(NORBIT)
Member of the scientific board of NORBIT,
and
NORBIT representative for Iceland
from 2003.
Organiser of the NORBIT
Scientific Conference in Iceland, 11. - 12. August 2008:
http://www.us.is/norbit08.
Fræðigreinar,
bækur og skýrslur (úrval)
Valdimar Briem (1986). Behaviour Observation: Theory and
Application in Psychological Research. Lund: CWK Gleerup.
Valdimar Briem (1988). Barn i trafiken: Aktivitetsmönster och
säkerhet på vägen till skolan. (Bulletin 78).
Lund, Sweden: Lund Institute of Technology.
Valdimar Briem (1997). Skolbarns
förflyttningar och trafikexponering. Óbirt
skýrsla. Lund University, Sweden.
Valdimar Briem (2004). Young children’s personality traits and
proneness to accidents. Óbirt skýrsla.
Valdimar Briem (2006). Öryggi barna í umferðinni -
Slys og fræðsla. Reykjavík: Vegagerðin,
RANNUM.*
Valdimar Briem (2007). Tågolyckor med barn inblandade:
Orsaker, följder och förebyggande åtgärder.
Borlänge: Banverket.
Valdimar Briem (2009). Umferðarfræðsla í
skólum. 94 bls. Reykjavík: Ministry of Internal
Affairs. Aðgengileg á
http://www.innanrikisraduneyti.is/verkefni-raduneytis/umferdamal/utgefni/nr/22919
Valdimar Briem & Hans Bengtsson (2000). Cognition and character
traits as determinants of young children's behaviour in traffic
situations. International Journal of Behavioral Development,
24(4), 492-505.
Valdimar Briem, Sonia de Lima & Camilla Siotis (2007). Train
drivers and fatal accidents on the rail: Psychological aspects and
safety. In J. R. Wilson, B. Norris, T. Clarke & A. Mills (Eds.),
People and rail systems. (pp. 103-111). London: Ashgate.
Valdimar Briem, Karl Radeborg, Ilkka Salo & Hans Bengtsson
(2004). Developmental aspects of children's behavior and safety while
cycling. Journal of Pediatric Psychology, 29(5), 369-377.
Valdimar Briem & Kjartan Þórðarson (2004).
Umferðarkannanir 1985 – 2002. Reykjavík:
Vegagerðin, RANNUM.
Valdimar Briem, Kjartan Þórðarson & Ásþór
Ragnarsson (2004). Sálrænir þættir í
umferðarslysum ungra ökumanna. Reykjavík:
Vegagerðin, RANNUM.
Valdimar Briem & Leif R. Hedman (1995). Behavioural effects of
mobile telephone use during simulated driving. Ergonomics, 38(12),
2536-2562.
Valdimar Briem, María Finnsdóttir & Margrét
Sæmundsdóttir (2003). Gagn og gaman: Mat á
umferðarfræðslu barna á leikskólastigi.
Reykjavík: Vegagerðin, RANNUM.
Valdimar Briem & Tinna Halldórsdóttir (2011). Líðan
og framtíðarsýn ungmenna á Austurlandi.
Íslenska þjóðfélagið, 2,
5-26. Aðgengileg á http://www.thjodfelagid.is
og sjá einnig aukaefni á http://
www.austursetur.is/, undir
fyrirsögninni Ný grein í
maí 2011.
* Allar RANNUM skýrslurnar eru aðgengilegar á
http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/rannum/