|
Ásdís Jónsdóttir |
Mannfræði
|
|
|
|
|
Tómasarhaga 16 |
|
107, Reykjavík |
|
552 0346 |
|
895 4602 |
|
Ásdís Jónsdóttir vinnur að rannsóknum á sviði umhverfismannfræði og vísindafræða. Hún stundar doktorsnám við Senter for teknologi, innovasjon og kultur (TIK) við Háskólann í Oslo og fjallar doktorsverkefni hennar um þekkingarsköpun sérfræðinga á sviði loftslagsbreytinga hér á landi, einkum um samspil þekkingarathafna og ímyndunar í sköpun viðsjárverðra framtíðarsýna og hvernig framtíðarsýnir hafa mótandi áhrif á þekkingarathafnir í nútímanum. Meistaraverkefni Ásdísar fjallaði um mótun miðhálendis Íslands með sérstaka áherslu á deilurnar um Kárahnjúkavirkjun. Á árunum 2005-2008 starfaði Ásdís á greiningarsviði Rannís og vann að úttektum á nýsköpun, vísindum og tækni á Íslandi. Þá hefur Ásdís kennt námskeið á sviði Norðurslóðafræða hjá Háskólanum á Bifröst og aðferðir í mannfræði hjá Háskóla Íslands. |
|
|
|
|
|