| Pósturinn í símann |
|
Þú getur lesið póstinn í símanum þínum. Google býður upp á mjög góða lausn í þeim efnum... sjá hér að neðan helstu kosti:
Margir notendur. Þú getur skipt á einfaldan hátt milli pósthólfa ef þú ert með fleiri en 1 google pósthólf. Skrifa núna en senda síðar. Skrifaðu póstinn í gemsanum en sendu hann síðar, jafnvel úr vefpóstinum! Flýtilyklar*. Hætta við síðustu aðgerð, skruna upp og niður, setja póst í geymslu eða eyða endurhlaða pósthólf með 1 takka og hjálp. Offline*. Opnaðu póstinn og lestu póst eða sendu þegar þú ert utan þjónustusvæðis, t.d. í sumarbústaðnum eða í flugvélinni á leið til útlanda. Pósturinn er svo sendur sjálfkrafa næst þegar síminn kemst í samband. Mörg tungumál. Gmail for mobile 2.0 styður yfir 35 tungumál. Þar á meðal Íslensku! Skilaboð hlaðin inn sjálfvirkt. Gmail sýnir þér ný skilaboð í innhólfinu án þess að þú þurfir að endurhlaða. Sjálfvirk ritun netfanga. Gmail hjálpar þér að klára netföng þeirra sem þú hefur sent eða fengið póst frá. Þannig getur þú skrifað langt netfang með því að velja aðeins fyrstu stafina. Skoða viðhengi. Opnaðu viðhengi sem þú færð send í tölvupósti. Þú getur opnað myndir, Word skjöl og PDF skrár.
* Athugaðu að ekki allir símar styðja offline eða flýtilykla.
** Póstur í símann kostar ekkert að hálfu Google en þú greiðir fyrir notkun skv. verðskrá símafyrirtækis þíns. Við hvetjum þig til að kynna þér þær áskriftaleiðir sem í boði eru hjá þínu símafyrirtæki fyrir netið í símann. Það getur munað miklu að velja rétta áskriftarleið ef þú ætlar þér að nota póstinn í símann.
Smelltu á hlekkina hér fyrir neðan til að finna leiðbeiningar um stillingar á póstinum í símann þinn:
Einnig getur þú opnað m.google.com í vafra á farsímanum þínum og þú getur þar sótt uppsetningarskrá fyrir póstinn í símann.
Ef þig vantar frekari leiðbeiningar eða aðstoð tæknimanns skaltu hafa samband við skrifstofu Reykjavíkur Akademíunnar. Athugið að notandi greiðir tímagjald fyrir aðstoð tæknimanns.
|






