| Upplestur og pallborðsumræður um bókina "Freyjuginning" 1.júní |
|
Rithöfundurinn Christina Sunley heimsækir ReykjavíkurAkademíuna Upplestur og pallborðsumræður í ReykjavíkurAkademíunni, JL húsinu Hringbraut 121, 4. hæð, þriðjudaginn 1. júní kl 16:00.
Christina tekur svo þátt í pallborðsumræðum um vesturferðir, Vestur Íslendinga og innflytjendur nútímans. Voru vesturfararnir ævintýramenn eða svikarar við þjóð sína? Líta Íslendingar vesturfara fortíðar sömu augum og innflytjendur nútímans?
Sjá nánar um bókina: http://www.christinasunley.com/
Aðrir þátttakendur verða: Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur Lolita Urboniene, einn af stofnendum Félags Litháa og Íslendinga. Ólafur Arnar Sveinsson sagnfræðingur og Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur sem stýrir umræðum.
Meira um Íslandsferð Sunley:
Íslandsheimsókn Christinu Sunley
Höfundar skáldsögunnar Freyjuginningar
Bandaríski rithöfundurinn Christina Sunley mun dvelja á Íslandi í lok maí og byrjun júní og kynna skáldsögu sína, The Tricking of Freya, sem fengið hefur frábærar viðtökur gagnrýnenda vestan hafs. Bókin kom út í íslenskri þýðingu Þórdísar Bachmanns fyrir síðustu jól undir heitinu Freyjuginning.
Christina Sunley er af íslenskum ættum og í bók hennar er skyggnst inn í íslenskan menningarheim frá sjónarhóli fólksins sem yfirgaf Ísland undir lok nítjándu aldar en varðveitti íslenska menningu fjarri ættjörðinni. Sögusvið bókarinnar er Ísland og Íslendingaslóðir í Kanada. Í Íslandsheimsókn sinni mun Christina Sunley kynna bók sína á eftirfarandi viðburðum:
Mánudaginn 31. maí kl. 16:30 í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Dagskrá í boði Bókafélagsins Uglu og Þjóðræknisfélags Íslendinga. Höfundur les upp úr bók sinni, segir frá tilurð hennar og tengslum sínum við Ísland og svarar fyrirspurnum. Kaffiveitingar.
Þriðjudaginn 1. júní kl.16:00 í ReykjavíkurAkademíunni, JL-húsinu Hringbraut 121, 4. hæð. Upplestur og pallborðsumræður þar sem m.a. verður fjallað almennt um vesturferðir Íslendinga með skírskotun til nútímans. Voru vesturfararnir ævintýramenn eða svikarar við þjóð sína? Líta Íslendingar vesturfara fortíðar sömu augum og innflytjendur nútímans?
Sunnudaginn 6. júní í Stofnun Gunnars Gunnarssonar, Skriðuklaustri. Höfundur les upp úr bók sinni og ræðir við gesti. Miðvikudaginn 9. júní kl. 17:00 í Amtsbókasafninu á Akureyri. Höfundur les upp úr bók sinni og ræðir við gesti. Á öllum þessum viðburðum verður bókin til sölu á sérstöku kynningarverði.
Frekari upplýsingar í síma: 698-9140
|
