Gammablossar er fyrirlestraröð í ReykjavíkurAkademíunni. Fyrirlestrarnir fara fram fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá klukkan 12.05-13.00
Dags: miðvikudagur, 04.mars 2009 kl. 12:05
Lengd: 1 Klst
Tengiliður:
Sigurður Gylfi Magnússon
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Heimasíða:
Miðvikudaginn 4. mars flytur Dr. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson fyrirlesturinn „Ísland er ekki líkt tunglinu: Hugleiðingar um þjálfun tunglfara á Íslandi.“ Í fyrirlestrinum verður sagt stuttlega frá tveimur ferðalögum bandarískra geimfara og geimfaraefna, sumra þeirra síðar tunglfara, um hálendi Íslands í júlí 1965 og 1967, einkum ferðalögum upp í Dyngjufjöll og Öskju en einnig í Jökulheima. Sagt verður frá aðferðum við þjálfun væntanlegra tunglfara, áhuga íslenskra dagblaða á þessum atburðum og upplifun þeirra Íslendinga sem með þeim fóru. Auk samtíma frásagna íslenskra dagblaða og viðtala við nokkra af þeim Íslendingum sem voru með í ferðalögunum er byggt á erlendum heimildum og viðtali við einn af tólf tunglförum og er aðalheiti fyrirlestursins úr því viðtali.