Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Heimasíða:
ReykjavíkurAkademían býður félögum sínum á námskeið í notkun Google- vefpóstsins þriðjudaginn 7. apríl klukkan 16.00. Google vefpóstur er af mörgum talinn bera höfuð og herðar yfir önnur póstforrit og nú gefst félögum í ReykjavíkurAkademíunni tækifæri til að kynnast forritinu og læra að nota það.
Í námskeiðinu er farið í grunnatriði Google vefpóstsins. Útskýrður er munurinn á Google vefpósti og á öðrum helstu póstforritum á borð við Outlook. Farið verður yfir helstu stillingar til að aðlaga forritið af þörfum notendans. Kennt verður að leita í vefpóstinum á sem skemmstum tíma. Eins verður kennt hvernig best er að flokka og merkja skeyti.
Google vefpósturinn nýtist ekki aðeins til að senda tölvupóst því hann býður upp á ýmsa aðra möguleika eins og dagatal, skjalavinnslu, gagnageymslu og spjall. Á námskeiðinu verða sýndir helstu notkunarmöguleikar Google vefpóstsins og notendum kennt hvernig auðvelda má alla vinnu með Google vefpóstinum.
Fyrirlesari er Eyjólfur R. Stefánsson, tölvurekstrarfræðingur.