Gammablossar er fyrirlestraröð í ReykjavíkurAkademíunni. Fyrirlestrarnir fara fram fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá klukkan 12.05-13.00
Dags: miðvikudagur, 06.maí 2009 kl. 12:05
Lengd: 55 Mín
Tengiliður:
Sigurður Gylfi Magnússon
Netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Heimasíða:
Í Gammablossum 6. maí flytur Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, fyrirlesturinn „Bernska ofurseld valdi. - Hag- og sagnfræðileg greining." Fyrirlesturinn hefst klukkan 12.05 og stendur til klukkan 13.00. Allir velkomnir.
Dr. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir er lektor í hagfræði við Háskóla Íslands og hefur umsjón með meistaranámi í heilsuhagfræði við skólann. Hún lauk doktorsprófi í hagfræði frá University of Miami í Bandaríkjunum en þar á undan lauk hún B.A.-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands.
Yfirlit fyrirlestrarins: Tinna Laufey mun ræða stöðu bernskunnar í tímans rás, hvernig samspili barna og fjölskyldna þeirra hefur verið háttað á nýöld í Evrópu og hvaða breytingum þetta samband hefur tekið á tuttugustu öld. Hún mun spá í hvernig nota má sagn- og hagfræðina til að draga saman upp áhugaverða mynd af þróun bernskunnar. Tinna Laufey mun jafnframt velta fyrir sér forsendum ríkisinngripa á síðari tímum og áhrifum þeirra á samskipti barna og foreldra í framtíðinni.