|
|
|||
|
Dags: föstudagur, 15.maí 2009 kl. 13:00
Lengd: 4 Klst
|
||
|
Þann 18. maí nk. verða liðin 80 ár frá því að frumvarp Héðins Valdimarssonar um verkamannabústaði var samþykkt sem lög frá Alþingi. Af því tilefni halda Bókasafn Dagsbrúnar og ReykjavíkurAkademían í samstarfi við stéttarfélagið Eflingu og Alþýðusamband Íslands málþing um verkamannabústaðina og þróun félagslegra íbúðabygginga á Íslandi frá upphafi fram til okkar daga.
Málþingið verður haldið föstudaginn 15. maí nk. í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121 og hefst kl. 13.00. Málshefjendur og fyrirlesarar á málþinginu verða Pétur H. Ármannsson, arkitekt, Sigurður E. Guðmundsson, sagnfræðingur og fyrrum framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar, Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðingur, Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, Gylfi Arnbjörnsson, forseti, ASÍ og Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi. Að loknum fyrirlestrunum mun Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, alþingismaður, stýra pallborðsumræðum. Málþingið er liður í áralöngu samstarfi ReykjavíkurAkademíunnar við stéttarfélagið Eflingu, sem á rætur í verkamannafélaginu Dagsbrún, en ReykjavíkurAkademían sér um rekstur Bókasafns Dagsbrúnar sem hefur verið staðsett þar síðan árið 2003. |
|||
|
||