Mánaðar sýn
Mánaðar sýn
Listi
Listi
Vikuleg sýn
Vikuleg sýn
Dagleg sýn
Dagleg sýn
Flokkar
Flokkar
Leita
Leita

Viðburður: 'Sjálfsmynd þjóðar'

Ýmsir fyrirlestrar og málþing
Dags: föstudagur, 06.nóvember 2009 kl. 08:00
Lengd: 1 Klst

Sjálfsmynd þjóðar

Dagana 15.-16. nóvember nk. verður haldin ráðstefna í Skálholtsskóla undir yfirskriftinni Sjálfsmynd þjóðar. Ætlunin er að fjalla um þjóðarhugtakið, sjálfsskilning þjóðar og sjálfsmynd. Ætlunin er að líta til baka yfir farinn veg, en einnig horfa til nútíðar og ekki síður framtíðar. Reykjavíkurakademían, tímaritið Glíman og Skálholtsskóli hafa kallað saman þverfaglegt teymi sérfræðinga til að fjalla um málið út frá ólíkum sjónarhornum, m.a. frá sjónarhorni guðfræði, mannfræði, þjóðfræði, sagnfræði, lögfræði, bókmenntafræði, stjórnmálafræði og heimspeki.

Dagskráin hefst á sunnudag kl. 15.30 og henni lýkur um kaffileitið á mánudag. Allt áhugafólk er boðið velkomið. Fullt verð með gistingu og fæði er kr.: 10.500.-

DAGSKRÁ:

Sunnudagur (15.11)

Kl. 15.00-15.30 Kaffi

Kl. 15.30-18.30 Fyrirlestrar (1. hluti)

  • Sigurjón Árni Eyjólfsson, guðfræðingur: Þjóðríkið sem staðleysa.
  • Kristinn Ólason, guðfræðingur: Um sjálfsmynd þjóðar eftir 50 ára útlegð.
  • Clarence E. Glad, guðfræðingur: Etnísk orðræða og mótun líkamlegrar samfélagsvitundar á upphafsárum kristni.

Kl. 18.30-19.30 Matur

Kl. 19.30-21.30 Fyrirlestrar (2. hluti)

  • Valborg Kjartansdóttir, lögfræðingur: „Að vita hvað sé leyft og hvað sé bannað“ – Sjálfsmynd og réttlæti.
  • Katla Kjartansdóttir, þjóðfræðingur: Sjálfsmynd þjóðar – Hvað er nú það?

Mánudagur (16.11)

Kl. 08.00-09.00 Morgunmatur

Kl. 09.00-12.00 Fyrirlestrar (3. hluti)

  • Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur: Sagan og sjálfsmynd(ir) íslenskrar þjóðar.
  • Guðmundur Andri Thorsson, bókmenntafræðingur: Skoppari eða púlari, trekkari eða frónari – Um sjálfsmynd þjóðar.
  • Egill Arnarson, heimspekingur: Þjóðarvitund og þjóðarórar.

Kl. 12.00-13.00 Matur

Kl. 13.00-15.00 Fyrirlestrar (4. hluti)

  • Hallfríður Þórarinsdóttir, mannfræðingur: Íslenska trúboðið – þjóðernishyggja, veraldleg trúarbrögð á Íslandi?
  • Stefán Karlsson, stjórnmálafræðingur: Hlutverk ríkisvaldsins í ritum um hrunið

Kl. 15.00 Kaffi
Kl. 15.30 Heimferð



Leita í dagatali