Smelltu á stafina hér að neðan til að finna félaga eftir stafrófsröð

A
- Á - B - C - D - E - F - G - H - I - Í - J - K - L - M - N - O - Ó - P - R - S - T - U - Ú - V - Y - Ý - Þ - Æ - Ö
Gunnþóra Ólafsdóttir
Landfræði

Tengiliður

Upplýsingar: Gunnþóra Ólafsdóttir er fædd og uppalin í Keflavík. Hún tók leiðsögumannapróf frá Leiðsöguskóla Íslands 1998. Árið eftir hóf hún nám í landfræði með ferðamálafræði sem aukagrein við Háskóla Íslands og lauk BS-gráðu í því fagi árið 2003. Í kjölfarið hóf hún doktorsnám í landfræði við School of Geographical Sciences, Bristol Háskóla þaðan sem hún útskrifaðist með doktorsgráðu í febrúar 2008. Gunnþóra hefur víðtæka starfsreynslu bæði í íslenskri ferðaþjónustu og í eigin verslunarrekstri. Í Háskóla Íslands aðstoðaði hún við rannsóknina Þolmörk ferðamennsku á Íslandi öll árin með námi. Í doktorsnáminu rannsakaði hún heilunaráhrif ferðalaga um náttúruleg svæði. Greindi aðdráttarafl íslenskrar náttúru sem áfangastað fyrir göngu- og jeppaferðamenn og hvernig ólíkir ferðamátar – ganga og akstur – leiddu ferðamenn og náttúruna saman á síbreytilegan hátt og hvernig tengslin höfðu áhrif á hvernig fólk skynjaði náttúruna, sjálft sig og líðan sína. Hún hefur verið sjálfstætt starfandi fræðimaður í ReykjavíkurAkademíunni síðan 2008 og hefur unnið við kennslu, skrif, rannsóknir og nýsköpun í samvinnu við aðra fræðimenn og listamenn.

Rannsóknaráhugi og sérsvið:
- Náttúran sem aðdráttarafl og auðlind fyrir ferðamennsku og útivist
- Áhrif umhverfis á líðan fólks; heilunaráhrif náttúrunnar
- Tengsl samfélags og náttúru
- Íslensk ferðaþjónusta
- Fyrirbærafræðilegar rannsóknir

Rannsóknaráhugi og sérsvið

Náttúrutengsl og upplifanir ferðamanna á Íslandi
Grein birt í Landabréfinu 2008

Áhrif Blöndulínu 3 á ferðaþjónustu og útivist
Rannsókn framkvæmd árið 2009 fyrir mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar háspennulínu frá Blönduvirkjun til Akureyrar


 














Icelandic (IS)English (United Kingdom)