|
Sólveig Ólafsdóttir |
Framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíu
|
|
|
|
Sólveig Ólafsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra 16. apríl 2010 af Viðari Hreinssyni sem hafði gengt starfinu síðan 1. september 2005.
Sólveig er sagnfræðingur að mennt en lauk nýlega meistaraprófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Lokaritgerð hennar fjallaði um Hólavallagarð, gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu, en helsta rannsóknarsvið Sólveigar hefur síðustu ár verið matarhefðir og matarmenning á Íslandi. Sólveig var framkvæmdastjóri sýningarinnar Reykvíska eldhúsið, matur og mannlíf á liðinni öld sem félagið Matur-saga-menning stóð að í samstarfi við Reykjavíkurborg og ReykjavíkurAkademíuna árið 2008. Hún er ennfremur einn að aðstandendum Prisma, diplómanáms í skapandi og gagnrýninni hugsun, sem Listaháskólinn og Háskólinn á Bifröst standa að í samstarfi við ReyjkavíkurAkademíuna. |
|
|
|