| Árskýrsla ReykjavíkurAkademíunnar árið 2010. |
|
Sólveig Ólafsdóttir framkvæmdastjóri er höfundur skýrslunnar. Í henni er ítarlegt yfirlit yfir starfsemi RA, daglegan rekstur, starfsmannahald og helstu rannsóknarverkefni innan RA. Einnig er í skýrslunni yfirlit yfir ráðstefnur og málþing sem haldin voru í ReykjavíkurAkademíunni á árinu 2010. Í skýrslunni er einnig gerð grein fyrir starfsemi Félags ReykjavíkurAkademíunnar auk þess að helstu verkefni fræðimanna eru tíunduð í sérstöku fylgiskjali með skýrslunni. Árið 2010 var ReykjavíkurAkademíunni rekstrarlega mjög þungt í skauti og einkenndist starfsemin af mikilli óvissu um hvort hún ætti einhverja framtíðarmöguleika. Í árslok leit jafnvel út fyrir að leggja þyrfti starfsemina niður á aðalfundi 2011 vegna rekstrarerfiðleika og húsnæðisvandræða. Það sem af er árinu eru horfurnar mun hagstæðari fyrir ReykjavíkurAkademíuna og munar þar mest um algera endurskipulagningu á rekstri, nýjan húsaleigusamning og síðast en ekki síst nýjan og metnaðarfullan styrktarsaming við mennta- og menningarmálaráðuneytið.
Ný stjórn ReykjavíkurAkademíunnar var kjörin á aðalfundi 15. apríl síðastliðinn Stjórnina skipa: Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur, formaður. Dr. Davíð Ólafsson sagnfræðingur, Þorgerður Þorvaldsdóttir kynjafræðingur Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur, Dr. Gunnþóra Ólafsdóttir landfræðingur Emma Björg Eyjólfsdóttir meistaranemi í heimspeki Dr. Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur Framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar er Sólveig Ólafsdóttir sagn- og menningarstjórnunarfræðingur Árskýrslu ReykjavíkurAkademíunnar má finna í heild sinni hér. |







