Janúar 2012 Febrúar 2012 Mars 2012
su þr mi fi la
Week 5 1 2 3 4
Week 6 5 6 7 8 9 10 11
Week 7 12 13 14 15 16 17 18
Week 8 19 20 21 22 23 24 25
Week 9 26 27 28 29



svartkot.jpg

inor.jpg

RSS

Einkavæðing, markaðsvæðing, heimsvæðing 13.maí

Attac á Íslandi og ReykjavíkurAkademían kynna:
Fyrirlestraröð um "Einkavæðing, markaðsvæðing, heimsvæðing"

Í maí og júní mun Attac á Íslandi gangast fyrir röð fyrirlestra. Þeir munu fjalla um einkavæðingu, markaðsvæðingu og hnattvæðingu undanfarinna áratuga.


Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, frá kl. 20:00 - 21:30 fimmtudaginn 13. maí í fyrirlestrarsal á 4. hæð.

Anna Karlsdóttir landfræðingur við Háskóla Íslands flytur fyrirlestur undir heitinu

Fyrirtækjaræði og lögleysur félagslegrar ábyrgðar í samtímanum."

Fyrirlesarar í þessari röð auk Önnu Karlsdóttir verða Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði, Magnús Sveinn Helgason hagsögufræðingur og Viðar Þorsteinsson heimspekingur.

27. maí: Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands flytur fyrirlestur undir heitinu "Hnattvæðingin og efnahagslegt öryggi Íslendinga." Í fyrirlestrinum ætla Guðmundur að fjalla um hugtakið efnahagslegt öryggi og skoða í sögulegu samhengi hvaða þættir hafa helst stuðlað að áhættu og óöryggi í íslensku efnahagslífi.

10. júní: Magnús Sveinn Helgason hagsögufræðingur heldur fyrirlestur, efni nánar auglýst síðar.

24. júní: Viðar Þorsteinsson heimspekingur flytur fyrirlestur undir heitinu „Nýfrjálshyggjan er ekki til."

 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)