| Stúdentastofa Reykjavíkur |
|
ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg kynna -
Stúdentastofu Reykjavíkur og Reykjavíkurstyrk Akademíunnar Aðstaða til verkefnavinnu og rannsóknarstyrkur ReykjavíkurAkademían og Reykjavíkurborg auglýsa eftir umsóknum frá háskólastúdentum í framhaldsnámi um vinnuaðstöðu án endurgjalds við rannsóknarverkefni sem tengjast borginni og borgarfræðum almennt. Vinnuaðstaðan er innan ReykjavíkurAkademíunnar við Hringbraut og er veitt endurgjaldslaust til þriggja mánaða. Boðið er upp á aðstöðu fyrir allt að 6 háskólastúdenta og taka þeir þátt í starfsemi Akademíunnar á þeim tíma. Jafnframt óska Reykjavíkurborg og ReykjavíkurAkademían eftir umsóknum um rannsóknarstyrk að upphæð kr. 500.000 til rannsóknarverkefnis með hagnýtt gildi fyrir Reykjavíkurborg. Rannsóknarstyrkurinn er veittur einum háskólastúdent í Stúdentastofu Reykjavíkur og er þáttur í gildandi samstarfssamningi ReykjavíkurAkademíunnar og Reykjavíkurborgar. Samráðsnefnd á vegum Reykjavíkurborgar og ReykjavíkurAkademíunnar metur umsóknirnar. Vinsamlega sendið umsóknir um aðstöðu og rannsóknarstyrk með ferilskrá á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 15. september næstkomandi. |











