Félög, fyrirtæki og stofnanir

Félög

Hagþenkir - félag höfunda fræðirita og kennslugagna. Markmið félagsins er að gæta hagsmuna og réttar félagsmanna og bæta skilyrði til samningar og útgáfu fræðirita og kennslugagna og annars sem félagsmenn vinna að.

Félag áhugamanna um heimspeki starfar að vexti og viðgangi heimspekinnar á Ísland. Félagið gefur út Hug sem er eina hreinræktaða heimspekitímaritið sem kemur út á Íslandi. Jafnframt því stendur félagið reglulega fyrir samkomum um margvísleg heimspekileg málefni.

Félag um átjándu aldar fræði er fræðafélag sem hefur að markmiði að efla rannsóknir á sviði átjándu aldar fræða og skyldra efna, bæði hér á landi og erlendis. Félagið stendur árlega fyrir fjölda ráðstefna, málþinga og funda, ýmist eitt og sér eða í samstarfi við aðra aðila.

Félag þjóðfræðinga á Íslandi. Markmið félagsins er að efla þjóðfræðirannsóknir, kynna fræðigreinina, styðja við þjóðfræðikennslu og miðlun fræðanna til almennings. Félagið stuðlar að samvinnu þeirra sem starfa við fagið og gætir hagsmuna þjóðfræðinga.

Fornleifafræðingafélag Íslands er fagfélag forleifafræðinga á Íslandi. Hlutverk félagsins er að stuðla að eflingu fornleifafræðinnar á Íslandi og halda uppi faglegri umræðu.

Mannfræðifélag Íslands er ætlað að vera vettvangur til að efla fræðilega umræðu meðal mannfræðinga og stuðla að ráðstefnum og fyrirlestrum um mannfræðileg málefni. Félagið er fagfélag ætlað þeim sem hafa lokið háskólaprófi í mannfræði.

Náttúruverndasamtök Íslands eru frjáls félagasamtök áhugafólks um náttúruvernd með yfir 1300 skráða félaga. Náttúruverndarsamtökin eru opin öllum sem aðhyllast markmið samtakanna og vilja starfa í samræmi við lög þess. Árgjaldið er 3000 kr. Eitt mikilvægasta stefnumið Náttúruverndarsamtaka Íslands er að vernda miðhálendi Íslands.

Sagnfræðingafélag Íslands er fagfélag íslenskra sagnfræðinga. Sem slíkt er það vettvangur fyrir umræður um sérfagleg málefni, en jafnframt vill það stuðla að þverfaglegum rökræðum um vísindi og fræði almennt.

 

Fyrirtæki og stofnanir

Leikminjasafn Íslands hefur að markmiði að skrá leikminjar og setja upp sýningar á leikminjum og leiklistarsögulegu efni. Safnið mun í því skyni safna, varðveita, skrá, rannsaka og sýna leiklistarsögulegar minjar og hverskonar gögn um starf leikhúsa, leikhópa og leikfélaga, atvinnumanna jafnt og áhugamanna. Safnið sinnir ennfremur rannsóknum á leiklist, útgáfu og fræðslustarfi fyrir almenning, skólanemendur og menntastofnanir.

Lestrarsetur Rannveigar Lund. Í Lestrarsetri er fengist við vanda sem tengist rituðu máli, lestri og ritun / stafsetningu. Verkefnin eru m.a. greiningar á lestrar- og stafsetningarerfiðleikum/dyslexíu og ráðgjöf, kennsla, námskeið, ráðstefnur og fræðslufundir ásamt rannsóknum á lestri og stafsetningu.

Lýðræðissetrið ehf. Starfið á Lýðræðissetrinu er, ásamt því að vinna að útgáfu bókarinnar Lýðræði með raðvali og sjóðvali víða um heim, að afla reynslu af raðvali og sjóðvali með ráðum og annarri aðstoð. Leitað er að félagsskap og málefnum, þar sem ætla má, að þeir, sem ábyrgð bera, auðvelduðu sér verkið með raðvali eða sjóðvali.

Miðstöð einsögurannsókna (Me) er rannsóknarstofnun í ReykjavíkurAkademíunni. Forstöðumaður hennar er dr. Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur og forgangsmaður einsögunnar á Íslandi. Hlutverk Miðstöðvar einsögurannsókna er að standa að sjálfstæðum rannsóknum á sviði einsögu, miðla og gefa út fræðiverk þar sem aðferðir einsögunnar eru nýttar, stuðla að grunnrannsóknum á fjölbreyttum tegundum persónulegra heimilda í handritum ásamt því að vinna að þróun aðferða- og hugmyndafræði einsögunnar í framtíðinni.

Miðstöð innflytjendarannsókna ReykjavíkurAkademíunni (MIRRA). MIRRA er rannsóknarmiðstöð þar sem málefni innflytjenda og alþjóðlegir búferlaflutningar eru í brennidepli. Auk beinna rannsókna, upplýsinga- og gagnasöfnunar er MIRRA jafnframt tengiliður á milli stofnana á Íslandi, sem þjóna innflytjendum á einn eða annan hátt og fræðasamfélagsins. MIRRA vinnur ennfremur í samvinnu við samhliða stofnanir og háskóla erlendis.

Sögumiðlun sér um skipulagningu og hönnun sögusýninga, textagerð og útgáfu. Fyrirtækið hefur unnið að uppsetningu sýninga m.a. í Þjóðarbókhlöðunni og Þjóðmenningarhúsinu.

 


 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)