| Framkvæmdastjóri |
|
Sólveig Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar
Sólveig Ólafsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra 16. apríl 2010 af Viðari Hreinssyni sem hafði gengt starfinu síðan 1. september 2005. Sólveig er sagnfræðingur að mennt en lauk nýlega meistaraprófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Lokaritgerð hennar fjallaði um Hólavallagarð, gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu, en helsta rannsóknarsvið Sólveigar hefur síðustu ár verið matarhefðir og matarmenning á Íslandi. Sólveig var framkvæmdastjóri sýningarinnar Reykvíska eldhúsið, matur og mannlíf á liðinni öld sem félagið Matur-saga-menning stóð að í samstarfi við Reykjavíkurborg og ReykjavíkurAkademíuna árið 2008. Hún er ennfremur einn að aðstandendum Prisma, diplómanáms í skapandi og gagnrýninni hugsun, sem Listaháskólinn og Háskólinn á Bifröst standa að í samstarfi við ReyjkavíkurAkademíuna. |







