| Leiga á sal |
|
Hátíðarsalur ReykjavíkurAkademíunnar er á fjórðu hæð og rúmar hátt í 60 manns í sæti. Salurinn hentar vel til funda og fyrirlestra sem haldnir eru á kvöldin eða um helgar enda er þá lítil sem engin umferð um húsnæðið. Salurinn hefur einnig verið notaður sem veislusalur og á Akademían nokkur borð sem hægt er að fá að láni. Aðgangur er að eldhúsi. Leiguverð á sal fyrir fundi og fyrirlestra: 10.000 krónur Leiguverð fyrir félaga ReykjavíkurAkademíunnar: 5000 krónur Leiga á skjávarpa: 6000 krónur klukkutíminn.
![]()
Reglur um notkun salarins: 1. Gæta skal góðrar umgengni 2. Leigjandi sér sjálfur um að þrífa salinn og skila honum eins og tekið var við honum. 3. Ef óskað er eftir borðum og stólum til borðhalds þarf að greiða aukalega fyrir aðstoð húsvarðar. Leigjandi sér þó sjálfur um allan flutning á húsgögnum. 4. Gengið skal frá greiðslum fyrirfram
|







