Skrifstofuaðstaða í fræðasetrinu við Hringbraut

 

Sjálfseignarstofnunin ReykjavíkurAkademían ses starfrækir fræðasetur á 4. og 5. hæð í JL-húsinu, Hringbraut 121, í Reykjavík. Þar eru tæplega 60 skrifstofur sem félagsmenn geta fengið leigt til lengri eða skemmri tíma. vidar.jpg

Skrifstofurnar eru frá 8-25 fermetrar að stærð. Innifalið í leigu á skrifstofu og fyrirtaks rannsóknaaðstöðu er eftirfarandi:

  • Internet, rafmagn og hiti.
  • Aðgangur að fundarherbergi, eldhúsi og ráðstefnusal án endurgjalds.
  • Þátttaka í fjölfaglegu samstarfi.
  • Þátttaka í gerð námskeiða, útgáfu og mótun ráðstefna og málþinga.
  • Möguleiki á að sækja um framlag úr þeim sjóðum sem ReykjavíkurAkademían kann að hafa yfir að ráða hverju sinni til að styrkja einstök verkefni.
  • Möguleiki á kennslu á háskólastigi og öðrum verkefnum sem ReykjavíkurAkademían tekur að sér.

Til að sækja um skrifstofu þarf að fylla út eyðublaðið Umsókn um skrifstofu hér til vinstri.

Athugið að aðeins félagar í ReykjavíkurAkademíunni geta fengið vinnuaðstöðu. Upplýsingar um félagið og félagsaðild er að finna undir flipanum Félagið

Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Akademíunnar. Skrifstofan er opin virka daga frá kl 10-14.

Símanúmer skrifstofu er  562 8561

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.




 
Icelandic (IS)English (United Kingdom)