| Verkefni innan RA |
|
Þau rannsóknarverkefni sem orðið hafa til innan veggja RA og njóta virks stuðnings RA eru:
Ísland og ímyndir norðursins (ÍNOR) Rannsóknaverkefnið Ísland og ímyndir Norðursins fékk öndvegisstyrk frá Rannís árið 2007. Rannsóknahópurinn sem stendur að verkefninu, ÍNOR-h
ópurinn, hefur verið starfandi innan ReykjavíkurAkademíunnar undanfarin ár. Hann hefur fengið til liðs við sig fræðimenn frá alls um 10 háskólum, hér á landi, í Bandaríkjunum, Kanada, Þýskalandi, Noregi og Svíþjóð. Verkefnisstjórar eru Sumarliði R. Ísleifsson og Daniel Chartier.
Miðstöð innflytjendarannsókna ReykjavíkurAkademíunnar (MIRRA)
Forstöðumaður MIRRA er Dr. Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur.
SVARTÁRKOT, menning - náttúra ReykjavíkurAkademían hefur unnið með heimamönum í Bárðardal að því að koma á fót rannsókna- og menntasetri í Svartárkoti við jaðar Ódáðahrauns. Þar er nú rekinn blómlegur fjárbúskapur en um leið hefur hafist í dalnum alþjóðleg kennsla á háskólastigi um samband menningar og náttúru. Nálgunin er þverfagleg og staðurinn er við hæfi þar sem mannabyggð mætir óbyggðum. Boðið er upp á þrjú sumarnámskeið um landfræði, handritamenningu síðari alda og umhverfissagnfræði. Einnig eru haldin námskeið í samvinnu við erlenda háskóla á öllum árstímum. Verkefnisstjóri Svarárkots er Axel Kristinsson sagnfræðingur
|






