|
Ritröðin Atvik er vettvangur þar sem hugmyndir og rannsóknir eru kynntar með þýðingum og frumsömdum textum í hnitmiðuðum smáritum, handhægum og ódýrum bókum í vasabroti. Atviks-bókunum er ætlað að draga fram athyglisverðar hræringar í menningarlífi hér á landi og erlendis og örva umræðu um knýjandi efni sem tengjast samtímanum. Hægt er að kaupa allar atviksbækurnar á skrifstofu ReykjavíkurAkademíunnar, JL-húsinu, Hringbraut 121, eða fá þær heimsendar. Pantanir berist á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að bókunum en áskrifendur fá afslátt.
|
Almenningsálitið er ekki til Pierre Bourdieu Ritstjóri er Davíð Kristinsson Félagsvísindamaðurinn Pierre Bourdieu var einn áhrifamesti hugsuður Frakklands á 20. öld, jafnt innan háskólasamfélagsins sem utan þess. "Við núverandi aðstæður eru skoðanakannanir stjórnvaldstæki. Líkast til er mikilvægasta hlutverk þeirra fólgið í því að koma á þeirri tálsýn að til sé almenningsálit sem samanstandi einfaldlega að samanlögðum skoðunum einstaklinga eða einhvers konar meðalskoðun. Almenningsálitið sem birtist á forsíðum dagblaðanna í formi prósentutalna er hreinn og klár tilbúningur..."
Verð = 2.500 + sendingakostnaður
|
|
 |
|
|
Að sjá meira Susan Sontag Ritstjóri er Hjálmar Sveinsson Susan Sontag var meðal snjöllustu essayista síðustu áratuga. Ritgerðum hennar var reyndar ekki ætlað að sanna eitt eða neitt eða byggja upp akademíska kenningu um veruleikann. Þær eru miklu frekar knúnar áfram af einstöku næmi fyrir margbreytileika hlutanna eins og þeir birtast okkur – og sterkri réttlætiskennd. Í ritgerðum sínum hnitar hún stóra og smáa hringi í kringum kjarna hvers máls, kjarna sem reynist oft vera siðfræðileg og fagurfræðileg þversögn.
Verð 2.200 + sendingakostnaður
|
|
 |
|
 |
|
Miðill - Áhrif - Merking Marshall McLuhan Ritstjóri er Þröstur Helgason Marshall McLuhan skaut upp á stjörnuhimin fræðanna á sjöunda áratugnum með frösum um heimsþorpið, stjörnuþoku Gutenbergs og að miðillinn væri merkingin. Á bak við þá bjó óvenjuskörp og afhjúpandi sýn á áhrif fjölmiðla samtímans og upplýsingabyltingarinnar sem enn er verið að vinna úr í alþjóðlegu fræðasamfélagi. Í þessu riti eru birtar þýðingar á fimm grundvallargreinum eftir McLuhan ásamt ítarlegum inngangi um manninn, hugmyndir hans og áhrif.
Verð = 1.900 + sendingakostnaður
|
|
 |
|
 |
|
Borgarmynstur Ritstjórar eru Halldór Gíslason og Geir Svanson Í þessari bók er úrval greina og textabrota, eftir erlenda arkitekta og fræðimenn, um borgina, hugmyndarfræði hennar, hönnun og skipulag. Greinarnar gætu verið lesefni í nýlegri fræðigrein sem nefnd hefur verið „borgarfræði“ eða „urban studies“ enda er tilgangur bókarinnar að veita innsýn í þá fræðigrein.
Verð = 2.200 + sendingakostnaður
|
|
 |
|
 |
|
Heimspeki verðandinnar. Rísóm, sifjar og innrætt siðferði Ritstjóri er Geir Svansson. Efni bókarinnar er „Rísóm“, inngangurinn að Mille Plateaux eftir Gilles Deleuze og Félix Guattari í þýðingu Hjörleifs Finnssonar og ritgerðin „Hvers er Nietzsche megnugur? Um íslenska siðfræði og franska sifjafræði“ eftir Davíð Kristinsson og Hjörleif Finnsson.
Verð = 1.900 + sendingakostnaður
|
|
 |
|
 |
|
Tíðarandi í aldarbyrjun Ritstjóri er Þröstur Helgason Greinar um Tíðaranda í aldarbyrjun birtust í Lesbók Morgunblaðsins á útmánuðum árið 2001. Þessi bók hefur að geyma úrval þessara greina. Þær voru valdar með það í huga að sýna eins konar þverskurð af þeirri mynd tímans sem höfundar drógu upp í greinarflokknum. Höfundarnir eru þekktir íslenskir fræðimenn og einn erlendur.
Verð = 1.900 + sendingakostnaður
|
|
 |
|
 |
|
Molar og mygla. Um einsögu og glataðan tíma Ritstjórar eru Ólafur Rastrick og Valdimar Tr. Hafstein Carlo Ginzburg, upphafsmaður einsögunnar, er einn greinarhöfunda þessarar Atviksbókar. Verk hans eru meðal annars viðfangsefni greina sagnfræðinganna Davíðs Ólafssonar og Sigurðar Gylfa Magnússonar. Þeir ræða einnig almennt um einsöguna, tengsl hennar við póstmódernismann og íslenska sagnfræði.
Verð = 1.900 + sendingakostnaður
|
|
 |
|
|
Framtíð lýðræðis á tímum hnattvæðingar Ritstjórar eru Hjálmar Sveinsson og Irma Erlingsdóttir Þetta er safn greina sem upphaflega birtist í þýska vikuritinu Die Zeit. Hér velta nokkrir þekktustu félagsfræðingar og stjórnmálafræðingar samtímans fyrir sér framtíð lýðræðis á tímum hnattvæðingar.
Verð = 1.900 + sendingakostnaður
|
|
|
|
Frá eftirlíkingu til eyðimerkur Jean Baudrillard Róttæk hugsun Um níhílisma Framrás líkneskjanna Getuleysi sýndarveruleikans Samsæri listarinnar Svalar minningar.
Verð = 1.900 + sendingakostnaður
|
|
|
|
Listaverkið á tímum fjöldaframleiðslu sinnar Walter Benjamin Fjöldinn hefur nú jafn knýjandi þörf fyrir að færa hlutina "nær" sér bæði í landfræðilegum og mannlegum skilningi og að yfirvinna hið einstæða við hvern viðburð með því að notast við eftirmynd hans.
Verð = 2.200 + sendingakostnaður
|
|
 |
|
|
Tengt við tímann - Tíu sneiðmyndir frá aldarlokum Ritstjóri er Kristján B. Jónasson Tengt við tímann er safn tíu texta þar sem tíu manns reyna að finna taug milli sín og samtímans. Höfundar fjalla um ólíkar, stundum gerólíkar, hliðar á sama viðfangsefni.
Verð = 1.900 + sendingakostnaður
|
|
Hægt er að Atviksbækurnar hjá Bóksölu stúdenta. Smelltu hér
|
|