| Að græða á daginn og grilla á kvöldin: Nýfrjálshyggjan sem menningarlegt fyrirbæri 10. júní |
|
Attac á Íslandi og ReykjavíkurAkademían kynna:
Fyrirlestraröð um "Einkavæðing, markaðsvæðing, heimsvæðing" Í maí og júní mun Attac á Íslandi gangast fyrir röð fyrirlestra. Þeir munu fjalla um einkavæðingu, markaðsvæðingu og hnattvæðingu undanfarinna áratuga.
Magnús Sveinn Helgason hagsögufræðingur flytur fyrirlestur undir heitinu „Að græða á daginn og grilla á kvöldin: Nýfrjálshyggjan sem menningarlegt fyrirbæri" Magnús Sveinn Helgason, sagnfræðingur, veltir fyrir sér með hvaða hætti nýfrjálshyggjan setur svip sinn á menninguna og hugmyndir okkar um samfélagið og stjórnmálin. Hann mun meðal annars velta því fyrir sér hvernig afpólítísering (depolitization) samfélagsins síðan á níunda áratugnum hefur greitt götu nýfrjálshyggjunnar og þeirri spurningu hvort atburðir vetrarins 2008-9 hafi markað tímamót í þessu tilliti.
Fyrirlesarar í þessari röð auk Magnúsar Sveins verða Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði, Magnús Sveinn Helgason hagsögufræðingur og Viðar Þorsteinsson heimspekingur. 13. maí: Anna Karlsdóttir landfræðingur við Háskóla Íslands flytur fyrirlestur undir heitinu „Fyrirtækjaræði og lögleysur félagslegrar ábyrgðar í samtímanum.“ 27. maí: Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands flytur fyrirlestur undir heitinu "Hnattvæðingin og efnahagslegt öryggi Íslendinga." Í fyrirlestrinum ætla Guðmundur að fjalla um hugtakið efnahagslegt öryggi og skoða í sögulegu samhengi hvaða þættir hafa helst stuðlað að áhættu og óöryggi í íslensku efnahagslífi. 24. júní: Viðar Þorsteinsson heimspekingur flytur fyrirlestur undir heitinu „Nýfrjálshyggjan er ekki til." |








