BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//ReykjavíkurAkademían - ECPv6.8.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://www.akademia.is
X-WR-CALDESC:Events for ReykjavíkurAkademían
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240924T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240924T170000
DTSTAMP:20260422T163633
CREATED:20241004T151922Z
LAST-MODIFIED:20241004T151922Z
UID:11839-1727164800-1727197200@www.akademia.is
SUMMARY:Í Öndvegi: Samhengi hins stóra og smáa\, Lára Magnúsardóttir
DESCRIPTION:Fyrir félaga RA \nFróðleikur\, brauð og álegg \nÍ Öndvegi: Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur \nLára segir frá rannsóknum sínum þar sem kjarninn er samhengið milli hins stóra og smáa; hvernig stjórnskipunarlög hafa áhrif á almenning og einstaklinga. Hún ætlar að fjalla um söguskoðun og aðferðafræði en segir frá athugunum sínum á orðalagi í Íslendingabók Ara fróða þar sem hann lýsir því hvernig landið var þegar fyrstu landnámsmennirnir komu. \nLára er öllum kunn í fræðimannasamfélaginu. Hún nam almenn málvísindi og sagnfræði til BA prófs við Háskóla Íslands 1993 og varði ritgerð í framhaldsnámi í miðaldasögu við Háskólann í Genf 1998. Árið 2007 hlaut hún dr. phil. nafnbót frá Háskóla Íslands fyrir rannsókn á heimildum um bannfæringu og kirkjuvaldi á Íslandi á tímabilinu 1275-1550\, þegar Rómakirkja fór með andlegt vald yfir andlegum málefnum samkvæmt samningi milli kirkju og konungs. Samanburður á lögum og heimildum um hvernig kirkjan beitti dómsvaldi sínu leiddi í ljós að stjórnkerfið var virkt\, valdheimildir vel afmarkaðar og að jafnaði beittu biskupar bannfæringu ekki að eigin geðþótta eins og gert hafði verið ráð fyrir samkvæmt eldri söguskoðun. \nLára hefur síðan rannsakað ýmis konar heimildir með tilliti til þess að andlegt vald og andleg málefni hafi verið stjórnskipunarleg hugtök allt fram til 1874. Út hafa komið bæði fræði- og blaðagreinar eftir hana\, einkum um refsirétt\, svo sem um kirkjugrið og ólík afdrif bannsettra manna og annarra útlaga á síðmiðöldum; réttarsögulegt samhengi stóradóms og tilganginn með lögum um uppreist æru. Hún hefur einnig hugað að nútímastofnunum sem reknar eru í þeim tilgangi að stuðla að andlegum ávinningi fyrir almenning og skrifað um tilgang Ríkisútvarpsins\, markmið með því og þjóðfélagslegt hlutverk.
URL:https://www.akademia.is/vidburdur/i-ondvegi-samhengi-hins-stora-og-smaa-lara-magnusardottir/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://www.akademia.is/wp-content/uploads/Lara-Magnusardottir.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR