ENGLISH

Hérna eru lög félagsins og upplýsingar frá stjórn

Ítarlegt krækjusafn á erlendar og innlendar síður er tengjast mannfræði

Mannfræðifélag Íslands var stofnað 19. september 2002. Því er ætlað að vera vettvangur til að efla fræðilega umræðu meðal mannfræðinga og stuðla að ráðstefnum og fyrirlestrum um mannfræðileg málefni. Félagið er fagfélag ætlað þeim sem hafa lokið háskólaprófi í mannfræði. Á fundinum voru samþykkt lög og kosin stjórn. Þessari síðu er ætlað að efla tengsl, upplýsingaflæði og umræðu á vettvangi mannfræði á Íslandi. Ef þú vilt gerast félagi geturðu sótt inntökueyðublað hér á síðunni og sent það ífyllt á netfang félagsins, mi@akademia.is

Allar ábendingar um vefinn og greinar eru vel þegnar. Ritstjóri vefsins er Droplaug M. Jónsdóttir. Hér á forsíðunni birtast áhugaverðar fréttir og stutt yfirlit yfir pistla sem eru í fullri lengd á Kvikunni þá er einnig fjallað neðst á síðunni um áhugverða viðburði.

9.janúar 2009

Í ókunnu landi: Um fjarlægð í mannfræði.

 

Nú er komið að fyrsta fyrirlestri nýhafins árs í fyrirlestraröðinni VETTVANGUR - NÁLGUN - SIÐFERÐI, sem verður þriðjudaginn 13. janúar n.k. í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121 4. hæð og hefst kl. 20:00.

 

Dr. Anna Lísa Rúnarsdóttir fjallar um efnið Í ókunnu landi: Um fjarlægð í mannfræði. Tengsl mannfræðinga við það umhverfi sem þeir stunda rannsóknir í gegnir lykilhlutverki í aðferðafræði fræðigreinarinnar. Í erindinu verður fjallað um hlutverk mannfræðingsins og þær siðferðislegu spurningar sem nærvera hans á vettvangi skapar. Hvaða áskoranir felur það í sér að takast á við vettvangsrannsókn og hvaða áhrif hefur persónan á fræðilegt gildi rannsóknarinnar?

 

„Í ókunnu landi“ vísar til þess að vettvangurinn getur verið fjarlægur á mismunandi hátt, hvort sem það er í tíma eða rúmi. Þessi fjarlægð getur skapað hindranir, en einnig verið gagnleg í þeirri nálgun sem beitt er við rannsóknina. Leitast verður við að tengja umfjöllunina við persónulega reynslu og tekin dæmi úr rannsóknum á Tonga og Íslandi. Í annarri rannsókninni var um að ræða ókunnugt land þar sem nálægðin við viðmælendur var mikil, en í hinni rannsókninni var um að ræða ókunnugan tíma þar sem munnlegar heimildir um fortíðina voru tengdar við efnisleg ummerki hennar. Þessar nálganir eru ólíkar en skapa mismunandi möguleika á samræðu og túlkun.

 

Anna Lísa Rúnarsdóttir lauk doktorsprófi í mannfræði frá University College London árið 2004 og fjallaði rannsókn hennar um tengsl efnismenningar við samfélagsþróun á Tonga-eyjum í Kyrrahafi. Heiti ritgerðarinnar var „Modernity and Tradition: Houses and Material Culture in the Kingdom of Tonga.“ Þá hefur Anna Lísa einnig stundað rannsóknir á efnismenningu torfbæja á Íslandi. Hún starfar nú sem sviðstjóri rannsókna- og varðveislusviðs á Þjóðminjasafni Íslands.

 

Allir velkomnir – kaffi á könnunni

 

7. nóvember 2008

Áskoranir, samvinna og siðgæði í lífssögurannsókn.

 

Fyrsti fyrirlestur vetrarins verður haldinn þriðjudaginn 11. nóvember n.k. í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð og hefst hann kl. 20:00. Guðrún Valgerður Stefánsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands ríður á vaðið. Fyrirlestur hennar nefnist „Áskoranir, samvinna og siðgæði í lífssögurannsókn.“

 

Þegar litið er til Íslandsögunnar þá hefur fólk með þroskahömlun að mestu verið ósýnilegt og þekking á lífi þeirra hefur einkum byggt á upplýsingum frá öðrum, svo sem sérfræðingum, fagfólki og aðstandendum. Fyrirlesturinn byggir á doktorsrannsókn Guðrúnar sem ber yfirskriftina „Ég hef svo mikið að segja.“ Lífssögur Íslendinga með þroskahömlun á 20. öld, en henni var meðal annars ætlað að bregða ljósi á hina duldu sögu fólks með þroskahömlun og skapa rými fyrir raddir þeirra sjálfra. Á öllum stigum rannsóknarinnar var byggt á nánu samstarfi við lífssögupersónur rannsóknarinnar. Í fyrirlestrinum segir Guðrún meðal annars frá þessu samstarfi og fjallar um nokkur af þeim fjölmörgu siðferðilegu álitamálum og áskorunum sem urðu á vegi hennar í rannsóknarvinnunni. Þar má nefna stöðu og áhrif rannsakanda í lífssögurannsókn, tengsl og trúnað við viðmælendur, höfundarétt og áreiðanleika minnisins.

 

Allir velkomnir – kaffi á könnunni

 

14. október 2008

Fyrsti viðburður vetrarins

 

Kæru félagar

Stjórn Mannfræðifélags Íslands hefur ákveðið að yfirskrift vetrardagskrárinnar verði Vettvangur - nálgun - siðferði. Verið er að leggja síðustu hönd á fyrirlestraröðina og verður dagskráin kynnt jafnskjótt og hún er tilbúin.

 

Fyrsti viðburður haustsins er umræðufundur sem verður haldinn í kvöld, 14. október kl. 20:00. Fundarstaður er Café Loki, Lokastíg 28 Reykjavík. Efni fundarins er umræða um þema vetrarins og hugmyndir um siðareglur fyrir íslenska mannfræðinga. 

 

Félagar eru hvattir til að mæta og miðla af reynslu sinni og hugmyndum um mannfræðilega nálgun og siðferði á vettvangi. Léttar veitingar verða á boðstólum, kaffi, te og ljúffengar snittur og þess vegna verður hóflegur aðgangseyrir, 500 kr á mann.

 

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Stjórnin

 

 

24.júní 2008

Aðalfundur Mannfræðifélags Íslands.

Aðalfundur Mannfræðifélags Íslands var haldinn fimmtudaginn 19. júní í Reykjavíkur Akademíunni.

 

Farið var yfir starfsemi félagsins síðasta starfsár og stóð félagið fyrir mörgum uppákomum. 6 skipulagðir fyrirlestrar voru haldnir í fyrirlestraröð félagsins, 1 atburður utan dagskrár, ein afmælishátíð, pallborð um sjónræna mannfræði og ráðstefnan Mannfræði á 21. öldinni í samvinnu við fleiri aðila.

 

Ný stjórn var kosin á fundinum. Katrín Anna Lund og Marín Þórsdóttir gengu úr stjórn og í þeirra stað voru kosnar Sólveig Jónasdóttir og Hulda Proppé. Unnur Steingrímsdóttir, Sólveig Georgsdóttir, Anna Lísa Rúnarsóttir, Hallfríður Þórarinsdóttir og Droplaug Margrét Jónsdóttir sitja áfram í stjórn félagsins.

 

Einnig er skýrsla fromanns fyrir starfsárið 2007-2008 komin á síðuna, undir stjórn og lög. Þar er einnig hægt að nálgast eldri skýrslur. Einnig er hægt að nálgast skýrsluna hér (PDF).

 

Stjórnin

 

 

19. júní 2008

Aðalfundur Mannfræðifélags Íslands

 

Kæru félagar,

Minnt er á aðalfund Mannfræðifélags Íslands, sem verður haldinn í dag, 19. júní í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121, 4. h. Fundurinn hefst klukkan 20:00.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Félagar eru eindregið hvattir til að mæta á fundinn.

 

Fráfarandi stjórn mun að venju leggja fram tillögu um nýja stjórn. Vegna skyndilegs brottfalls kandídata eru félagar sem geta hugsað sér að koma inn í stjórn félagsins, þó ekki væri nema sem varamenn, hvattir til að hafa samband við formann í síma 862 6297 eða á netfangið mi@akademia.is

Minnt er á að aðeins þeir sem hafa greitt árgjald hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Þeir sem enn eiga eftir að greiða árgjald eru beðnir að gera skil fyrir fund.

 

Félögum er bent á að kynna sér lög Mannfræðifélags Íslands, sem má finna hér á heimasíðunni undir stjórn og lög.

 

 

22. maí 2008

Hvað er sjónræn mannfræði? -  Frásögn, túlkun, tengsl.  Pallborð í Norræna húsinu, laugardaginn 24. maí kl. 11 – 14

 

Í vetur hefur Mannfræðifélag Íslands staðið fyrir fyrirlestraröð undir þemanu Frásögn, túlkun, tengsl og hyggst nú loka vetrardagskránni með pallborði þar sem tekið verður sérstaklega fyrir viðfangsefnið sjónræn mannfræði sem að er ein af hliðargreinum mannfræðinnar.

 

Dagana 29. maí – 1. júní heldur NAFA (Nordic Anthropological Film Association) alþjóðlega heimildamyndahátíð og ráðstefnu um mannfræðilegar kvikmyndir á Ísafirði. Kvikmyndir eru meðal þeirra verkfæra sem sjónræn mannfræði notast við, en eru einnig vettvangur mannfræðilegra rannsókna. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á www.hrafnseyri.is.

 

Pallborðið n.k. laugardag er undanfari þessarar ráðstefnu og er því ætlað að gefa innsýn í fjölbreytileika þeirra viðfangsefna sem sjónræn mannfræði fæst við, ásamt fjölbreytileika nálgana hennar.

 

Stutt erindi flytja mannfræðingarnir Gísli Sveinn Loftsson, Katrín Anna Lund, Sigurjón Baldur Hafsteinsson, Tinna Grétarsdóttir og Þórunn Hafstað. Kristinn Schram þjóðfræðingur stýrir pallborðsumræðum að loknum erindunum. Hægt er að lesa nánar um fyrirlesarana hér.

 

Þetta pallborð lokar vetrardagskránni hjá Mannfræðifélagi Íslands. Allir eru hjartanlega velkomnir.

 

 

4. apríl 2008

„Hið sanna macho“: hugmyndir um karlmennsku, líkama og atbeina.

 

Síðasti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð Mannfræðifélags Íslands á þessu starfsári verður haldinn á þriðjudaginn 8. apríl kl. 20:00 í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121, Reykjavík. Þá talar Helga Þórey Björnsdóttir um efnið  “Hið sanna macho”: hugmyndir um karlmennsku, líkama og atbeina.

 

Efni fyrirlestrarins er sótt í yfirstandandi doktorsrannsókn Helgu i mannfræði við Háskóla Íslands. Rannsóknin skoðar menningar- og félagslegar hugmyndir um karlmennsku og kyngervi í tengslum við Íslensku friðargæsluna.Í rannsókninni er lögð áhersla á skoða tilurð kynjaðrar sjálfsmyndar karlmanna og samspil umhverfis, orðræðna og ráðandi hugmynda um karlmenn og karlmennsku er skoðað í víðu sögulegu samhengi. Niðurstöður rannsóknarinnar eru settar í samhengi við alþjóðlegar rannsóknir á friðargæslum, sem og við kenningar um karlmennsku almennt.

 

Helga Þórey Björnsdóttir lauk MA prófi í mannfræði við Háskóla Íslands árið 2004.  Lokaverkefni hennar fjallaði um heimilislaust fólk í Reykjavík og þar er því haldið fram  að samfélagslegar orðræður hafi mótandi áhrif á daglegt umhverfi heimilislauss fólks og að þessar orðræður endurspeglist í gagnorðræðum fólksins og atbeina.  Helga stundar nú doktorsnám í mannfræði við HÍ undir handleiðslu dr. Kristínar Loftsdóttur.

 

 

10. mars 2008

Er þróunarsamvinna trúboð?

 

Þriðjudaginn 11. mars n.k. heldur Þórdís Sigurðardóttir fyrirlestur með yfirskriftinni “Er þróunarsamvinna trúboð?” Fyrirlesturinn verður í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð og hefst kl. 20:00.

 

Þróunarsamvinna hefur metnaðarfull markmið um að draga úr fátækt og misskiptingu, efla mannréttindi og lýðræði og stuðla að sjálfbærri þróun í fátækari hlutum heimsins. Margar kannanir meðal almennings á Vesturlöndum sýna víðtækan stuðning við þróunarsamvinnu en jafnframt litla þekkingu á málaflokknum. Svo virðist sem gjarnan fari saman stuðningur við þróunarsamvinnu og efasemdir um að hún virki. Í erindinu er skoðuð mismunandi röksemdafærsla fyrir því hvers vegna við leggjum fram framlög til þróunarsamvinnu og velt upp spurningum á bak við meginhugtök. Þá verður fjallað um hvaða forsendur eru lagðar í dag til grundvallar við skipulagningu þróunarsamvinnu og mat á árangri hennar.  

 

Þórdís Sigurðardóttir lauk BA prófi í mannfræði og félagsfræði frá Háskóla Íslands og Cand Phil námi í mannfræði frá Árósaháskóla. Hún starfaði hjá Hjálparstofnun kirkjunnar1989-1990 og hefur starfað frá 1991 hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Á árunum 2000-2005 var hún umdæmisstjóri stofnunarinnar í Malaví en er nú skrifstofustjóri á aðalskrifstofu og skipaður staðgengill framkvæmdastjóra. Þórdís hefur einnig samið námsefni, m.a. um þróunarmál fyrir Námsgagnastofnun. Þá hefur hún stundað kennslu við Háskóla Íslands, fyrst á árunum 1997-1999 og aftur frá 2006.

 

Allir velkomnir

 

 

6. febrúar 2008

Sofa urtubörn á útskerjum: Um hugræna félagsþætti geðhvarfa

 

Næsti fyrirlestur á vegum Mannfræðifélags Íslands undir yfirskriftinni FRÁSÖGN – TÚLKUN – TENGSL verður þriðjudaginn 12. febrúar n.k. Fyrirlesari er Unnur Steingrímsdóttir doktorsnemi í mannfræði við Háskóla Íslands og nefnist fyrirlestur hennar Sofa urtubörn á útskerjum: Um hugræna félagsþætti geðhvarfa.  Fyrirlesturinn verður í fundarsal ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð og hefst klukkan 20:00.

 

Rannsóknin byggir á lífssögum viðmælenda.  Niðurstöður hennar virðast meðal annars varpa ljósi á hvernig einstaklingurinn skapar og endurskapar sjálfsímynd sína og sjálfsskilning á þeirri vegferð sem lífið býr honum.  Efniviðinn sækir hann einkum í félagstengsl bernsku sinnar sem um leið á sér rætur í ættarsögunni, trúararfi og sögu lands og þjóðar.  Í fyrirlestrinum verður einkum fjallað um þá viðmælendur sem hafa verið greindir með geðhvörf.    

 

Hin ýmsu fagsvið félagsvísinda hafa frá upphafi átt það sameiginlegt að hin fræðilega umræða hefur í meginatriðum snúist um félagsleg tengsl og þar af leiðandi mannleg samskipti þótt sjónarhóllinn hafi verið breytilegur.  Hér verður ekki vikið frá þeirri reglu.  Megináherslan verður þó á tengslin sem mótandi afl en samt um leið sem þekkingarlind sem hver og einn leitar í til þess að finna lífi sínu stað, ekki bara á ögurstundu heldur einnig og ekki síður þegar allt virðist leika í lyndi.

 

Við greininguna er leitað í smiðju mannfræði, sálfræði, félagsfræði og sálgreiningar. Einkum verður leitað í fræðasmiðju þeirra Anthony Giddens og Roy Baumeister sem og Marlyn Strathern, Pierre Bourdieu, Paul Rabinow og Michel Foucault en aðrir hér ónefndir postular fræðanna verða einnig kallaðir til leiks eftir föngum.

 

Unnur Steingrímsdóttur lauk BS prófi í líffræði frá Háskóla Íslands vorið 1972 og stundaði framhaldsnám við Háskólann í Stokkhólmi á árunum 1971 til 1973.  Unnur starfaði sem líffræðingur un árabil við Raunvísindastofnun háskólans og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Í lok síðustu aldar venti hún sínu kvæði í kross og sneri sér að námi í félagsvísindum. Hún lauk BA prófi í þjóðfræði frá HÍ vorið 2001 og MA prófi í mannfræði frá sama skóla vorið 2003. Unnur stundar nú doktorsnám í mannfræði við Háskóla Íslands.

 

Allir velkomnir

 

 

7. janúar 2008

Er mannfræði vefnaðarvara? Vettvangsrannsóknir í ljósi tengslahyggju.

 

Fyrsti fyrirlestur Mannfræðifélags Íslands á nýju ári verður haldinn þriðjudaginn 8. janúar í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð og hefst kl. 20:00. Þá fjallar Dr. Gunnar Þór Jóhannesson um efnið: Er mannfræði vefnaðarvara? Vettvangsrannsóknir í ljósi tengslahyggju.

 

Eiga mannfræðirannsóknir eitthvað sameiginlegt með vefnaðarvöru? Og ef svo er, til hvers gagnast líkingin við vefnað í umfjöllun um mannfræðirannsóknir? Í erindinu er velt upp spurningum um þekkingarsköpun í mannfræði. Athygli er sérstaklega beint að hugmyndum um vettvanginn og samspili vettvangsrannsókna og framsetningar niðurstaðna. “Vettvangurin” er eitt af grundvallarhugtökum mannfræðinnar og samofið sjálfsmynd greinarinnar og þeirra sem hana stunda. Hugtakið vettvangur vekur ósjálfrátt upp hugrenningartengsl við stað eða afmarkað svæði og hefur skilningur á hugtakinu í mannfræði oft tekið mið af því. Það er þó ekki einhlítt og í erindinu er fjallað um hvernig megi hugsa um vettvangsrannsóknir og rýmislegt samhengi þeirra á ólíkan hátt, sérstaklega í ljósi tengslahyggju. Sjónum verður beint að rannsóknum sem byggja ekki á einum staðbundnum vettvangi, heldur rekja ólíka þræði á milli staða sem saman mynda vettvang rannsóknarinnar. Í þessu sambandi er því haldið fram að það geti verið gagnlegt að hugsa um mannfræðirannsóknir sem handverk sem á margt skylt við vefnað. Það er, sköpunarferli þar sem ólíkir þræðir eru tvinnaðir saman í virkum tengslum vefara við efnivið sinn. Til að varpa ljósi á þetta verður í erindinu teflt saman reynslu höfundar af vettvangsrannsóknum, fræðilegri orðræðu um vettvangsrannsóknir og tengslahyggju og dæmum um handverkshefð og listsköpun á sviði vefnaðar.

 

Gunnar Þór lauk MA prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 2003 og doktorsprófi í land- og ferðamálafræði frá háskólanum í Hróarskeldu í Danmörku vorið 2007. Doktorsverkefni hans fjallar um framkvæmd nýsköpunarverkefna í menningartengdri ferðaþjónustu á Íslandi og í Færeyjum. Gunnar Þór starfar nú sem verkefnisstjóri við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands

 

Allir velkomnir

 

 

28.nóvember 2007

ÞAÐ REDDAST!  Mannfræðilegar pælingar um útrás íslenskra fyrirtækja  

 

Laugardaginn 1. desember n.k. flytur hollenski mannfræðingurinn Adriënne Heijnen fyrirlestur á vegum Mannfræðifélags Íslands undir heitinu: ÞAÐ REDDAST!  Mannfræðilegar pælingar um útrás íslenskra fyrirtækja. Fyrirlesturinn verður á 2. hæð á Kaffi Sólon, Bankastræti 7 og hefst kl. 17:00. Fyrirlesturinn er ókeypis og öllum opinn.

 

Adriënne Heijnen lauk doktorsprófi í mannfræði við háskólann í Árósum 2005 og starfar nú við sama háskóla. Hún hefur stundað rannsóknir á Íslandi um árabil og er nú að vinna að rannsókn um útrás Íslendinga á Íslandi, í Danmörku og næstu árin einnig í Hollandi. Í rannsókninni tengir Adrienne útrás íslenskra viðskiptajöfra við umskiptin frá bændasamfélagi til auðvaldssamfélags. Áherslan er m.a. á hvernig viðskiptanet hafa komið í stað ættartengsla, en einnig er fjallað um hvernig trú á framtíðina, áhættumat, nýsköpun, hugmyndir um félagslega ábyrgð, og sjálfsmyndir einkenna orðræðuna.

 

Allir eru velkomnir. Vinsamlegast athugið fundarstaðinn, Kaffi Sólon, 2. hæð.

 

 

12.nóvember 2007

Þau minna á fjallavötnin fagurblá - Um dægurlagatexta og samfélag á seinni hluta tuttugustu aldar 

 

Mannfræðifélag Íslands kynnir næsta fyrirlestur í fyrirlestraröðinni FRÁSÖGN – TÚLKUN – TENGSL.

Þau minna á fjallavötnin fagurblá - Um dægurlagatexta og samfélag á seinni hluta tuttugustu aldar

er yfirskrift fyrirlestrar sem Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur og Ragnheiður Eiríksdóttir tónlistarmaður flytja n.k. þriðjudagskvöld 13. nóvember. Fyrirlesturinn verður á 2. hæð Kaffi Sólon, Bankastræti 7 og hefst klukkan 20:00.

Dægurlög og textar sem þjóðin gerir að sínum, syngur á böllum í rútuferðum, í útilegum og fjallaskálum, eru í raun hennar eigin skáldskapur, það er fólkið í landinu sem ákveður hvað fellur þjóðarsálinni í geð, hitt hverfur, skýtur ekki rótum, jarðvegurinn hafnar þeim. Vinsældir dægurlaga og texta hljóta að gefa til kynna að þeir eigi erindi í sinn samtíma.

 

Í fyrirlestrinum er leitast við að skilja hvaða samfélag það er sem birtist í vinsælum dægurlagatextum, hverjar eru hetjurnar, hver er staða konunnar, hverjar eru vonir og þrár þeirra sem sungið er um eða sungið til?

Kristín Einarsdóttir er MA í þjóðfræði frá Háskóla Íslands. Hún er stundakennari við Háskóla Íslands. Ragnheiður Eiríksdóttir er landsþekktur tónlistarmaður og er e.t.v. betur þekkt sem Heiða Eiríks.

 

Allir eru velkomnir. Vinsamlegast athugið fundarstaðinn, Kaffi Sólon, 2. hæð.

 

 

31.október 2007

Doktorsvörn í mannfræði við félagsvísindadeild Háskóla Íslands 
Eyjan sítengda - mannfræðingur á ferð um farsímanetið.

Föstudaginn 2. nóvember fer fram doktorsvörn við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Þá ver Davíð Bjarnason mannfræðingur doktorsritgerð sína "An Island of Constant Connection - an anthropologist explores mobile networks" eða "Eyjan sítengda - mannfræðingur á ferð um farsímanetið". Andmælendur eru dr. Bryan Pfaffenberger, prófessor í Science, Technology and Society við Virginíuháskóla og dr. Katrín Anna Lund, mannfræðingur og lektor við landafræðiskor Háskóla Íslands.

 

Athöfnin fer fram í hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands og hefst klukkan 14:00. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Háskóla Íslands.

 

Félagar MÍ eru hvattir til þess að fjölmenna.

Stjórnin

 

30.október 2007

Fyrirlestrar á vegum Mannfræðistofnunar
Mannfræðifélag Íslands vill vekja athygli ykkar á tveimur fyrirlestrum sem eru haldnir á vegum Mannfræðistofnunar næstkomandi fimmtudag, 1. nóvember.

 

Fimmtudaginn 1. nóvember heldur Dr. Heather Paxson frá MIT Háskólanum í Bandaríkjunum fyrirlestur sem nefnist Cultivating Terroir: How American Producers Locate Artisanal Cheese along a Nature-Culture Continuum. Í fyrirlestri sínum mun Heather Paxson ræða um ostagerð í Bandaríkjunum með hliðsjón af hugmyndum um sjálfbæra náttúru og samsömun framleiðenda og þess lands sem þeir búa á.

Staður: í stofu 206 Odda, kl. 12:20 og eru allir velkomnir.

 

 

Fimmtudaginn 1. nóvember heldur prófessor Bryan Pfaffenberger frá Háskólanum í Virginíu í Bandaríkjunum fyrirlestur sem nefnist Voting machines and U.S. political culture: Why the world's information technology leader can't count votes.  Í fyrirlestri sínum mun Bryan Pfaffenberger ræða um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2000. Erindi hans skoðar þann ágreining sem kom upp í tengslum við kosningarvélar sem notaðar voru í Flórídafylki. Pfaffenberger leitar svara við ágreiningi þessum í mannfræðilegum kenningum, tækni í sögulegu ljósi og vísindarannsóknum.
Staður: í stofu 101 í Odda, kl. 16:00 - 17:00 og eru allir velkomnir.

 

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Mannfræðistofnunar.

 

 

9.október 2007

„Sumarið bláa“. Félagslegar afleiðingar Skaftárelda
Fyrirlesari: Björk Þorleifsdóttir, MPhil í umhverfissagnfræði

 

Fyrsti fyrirlestur haustsins í fyrirlestraröðinni Frásögn – túlkun – tengsl verður haldinn í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121, 4. h., þriðjudaginn 9. október 2007 og hefst kl. 20:00. Björk Þorleifsdóttir umhverfissagnfræðingur heldur fyrirlestur sem nefnist “SUMARIÐ BLÁA”. FÉLAGSLEGAR AFLEIÐINGAR SKAFTÁRELDA.

 

"Sumarið árið 1783 var undravert og geigvænlegt og fullt af hroðalegum fyrirbærum...ólíkt öllu öðru í manna minnum." Þannig komst enskur sveitaprestur að orði í dagbók sinni fyrir meira en 200 árum síðan. En hvað var það sem var svo einkennilegt og hryllilegt við þetta sumar? Hvað datt fólki í hug þegar sólin varð rauð sem blóð, ógnvænlegar hitabylgjur og nístingskuldar brustu á, húsdýrin hegðuðu sér einkennilega og óskiljanlegir sjúkdómar lögðust á fólk? Árið 1783 datt ekki mörgum Evrópubúum í hug að slík fyrirbæri gætu tengst eldgosi á fámennri eyju í Norðurhöfum og leituðu sumir svara í guðdóminum og aðrir leituðu á náðir náttúruskýringa á þessari öld upplýsingarinnar.

 

Í fyrirlestrinum verður því rætt um hughrif náttúruhamfara fyrr á tímum, með Skaftárelda í brennidepli. Litið verður til þróunar náttúruvísinda og áhrifa trúarinnar á almenningsviðhorf í kjölfar náttúrhamfara og pælt í áhrifum hamfara á einstaklinginn.

 

Björk Þorleifsdóttir, sagnfræðingur í ReykjavíkurAkademíunni, lauk BA prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og stundar nú mastersnám í umhverfissagnfræði við University of St. Andrews í Skotlandi og vinnur meðfram náminu við ýmis fræðistörf .

 

 

2.október 2007

Dagskrá 2007-2008

Mannfræðifélags Íslands býður ykkur öll hjartanlega velkomin á fyrirlestraröð félagsins 2007-2008 sem ber yfirskriftina: Frásögn, túlkun, tengsl.

Nánari upplýsingar um fyrirlestra er að finna undir Dagskrá.

 

 

2.október 2007

Fréttatilkynning

 

Afríka sunnan Sahara – í brennidepli –

Ritstjórar: mannfræðingarnir Jónína Einarsdóttir og Þórdís Sigurðardóttir.

 

„Afríka sunnan Sahara – í brennidepli“ er heiti á nýútkominni íslenskri bók sem ætlað er til að auka almennan fróðleik og skilning á álfunni, sögu hennar og samtíma. Útgefendur bókarinnar eru félagið Afríka 20:20, félag áhugafólks um málefni Afríku sunnan Sahara, og Háskólaútgáfan. Útgáfan er tímamótaverk því aldrei áður hefur verið skrifað jafn umfangsmikið rit um álfuna á íslensku.

 

Sérlega hefur verið vandað til útgáfunnar, en bókin er sneisafull af litríku myndefni ásamt því sem umfjöllunarefnin er einstaklega fjölbreytt. Tólf höfundar skrifa kafla í bókina sem er skipt upp í fjóra hluta: Sagan, Lifnaðarhættir og lífsafkoma, Listir og bókmenntir, og Afríka og umheimurinn.

 

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sendiherra í Suður-Afríku segir í formála:

„Því hefur verið haldið fram að hungur- og ofbeldismyndin af Afríku, stundum nefnd Bob Geldoff heilkennið, sé eitt helsta vandamál álfunnar. Ímyndin gerir að verkum að vestræn fyrirtæki fjárfesta ekki í álfunni, byggja ekki upp þekkingu og skila ekki arði í efnahagslífi hennar... Þessu riti er ætlað að auðvelda okkur að skilja Afríku. Það miðlar þekkingu um margbreytileika álfunnar, auðlindir hennar og vandamál, stöðu hennar á alþjóðavettvangi og þá ímynd sem hún hefur í hugum okkar. “

 

 

14. september 2007

Afmælishátíð!

Mannfræðifélag Íslands fagnar fimm ára afmæli á Thorvaldsen bar, Bertelsstofu, miðvikudaginn 19. september 2007 kl. 20:00.  Hallfríður Þórarinsdóttir segir sögu félagsins í stuttu máli.

Anna Lísa Rúnarsdóttir og Katrín Anna Lund opna þema fyrirlestrarraðar vetrarins: Frásögn - túlkun - tengsl. Þær munu velta fyrir sér aðferðum mannfræðinnar með það fyrir augum að opna gagnrýnar umræður um hvernig mannfræðingar nálgast viðfangsefni sín með þátttökurannsóknum.

Stjórnin vill hvetja alla félagsmenn og þá sem hafa áhuga á að ganga í félagið til að mæta og taka þátt í umræðum. Allir þeir sem útskrifuðust með BA og MA gráðu í mannfræði í júní s.l. eru boðnir sérstaklega velkomnir.

Opinn bar.

14.ágúst 2007

MANNFRÆÐI Á  21. ÖLDINNI.

Háskóli Íslands, 16.-17. ágúst 2007.

 

Mannfræðingar á Íslandi munu koma saman til að kynna viðfangsefni sín á ráðstefnu í Háskóla Íslands 16. og  17. ágúst n.k. Komið verður víða við, bæði í fræðilegum skilningi og landfræðilegum. Fyrirlesarar hafa sótt menntun sína víða og hefur verið mikil fjölbreytni í rannsóknum þeirra. Á dagskrá verða erindi sem fjalla um allt frá innflytjendamálum og kynjafræði til ímynda og efnismenningar. Þetta er í fyrsta sinn sem efnt er til ráðstefnu þar sem tekið verður á hinum ýmsu fræðilegu nálgunum sem mannfræðin býður upp á.

 

Ráðstefnan verður haldin í Odda, stofu 101.

Dagskráin stendur frá kl 9:00 til 17:00 báða daga.

Dagskrá má nálgast hér.

 

Með von um góða þátttöku.

Skipulagsnefnd.

 

 

9.ágúst 2007

MANNFRÆÐI Á  21. ÖLDINNI.

Háskóli Íslands, 16.-17. ágúst 2007.

 

Minni á að þátttakendur þurfa að skrá sig fyrir 10. ágúst. Uppfærða dagskrá ráðstefnunnar er hægt að nálgast hér.

 

Ráðstefnugjald á að greiðast inn á reikning Háskóla Íslands, Landsbanka Íslands, Vesturbæarútibú, reikningsnúmer: 137-26-476, kennitala reikningseiganda: 600169-2039.

Í skýringar setjið 1057-10570 og ykkar nafn.

 

Almennt þátttökugjald er 4.000 krónur. 

Nemendagjald er 2.000 krónur. 

Innifalið í skráningu er aðgangur að báðum dögum ráðstefnunnar auk kokteils á lokakvöldi ráðstefnunnar þann 17. ágúst.

 

Með von um góða þátttöku.

Skipulagsnefnd.

 

 

12.júlí 2007

MANNFRÆÐI Á  21. ÖLDINNI.

Háskóli Íslands, 16.-17. ágúst 2007.

 

Kæru mannfræðingar,

Við viljum hvetja ykkur öll til að taka þátt í ráðstefnu sem ber yfirskriftina Mannfræði á 21. öldinni. Á ráðstefnunni munu 33 fyrirlesarar fjalla um fjölbreytt efni frá efnismenningu, innflytjendamálum, þjóðernishyggju og skrímslum svo eitthvað sé nefnt og gefa þeir okkur innsýn í viðfangsefni mannfræðinga í dag. Dagskrá ráðstefnunnar (sjá hér) gefur skýra hugmynd um þennan fjölbreytileika. Umræðurnar verða því vonandi líflegar og fræðandi. Við skorum á þá sem ekki hafa séð sér fært að halda erindi að taka þátt með okkur í þessu framtaki og mæta á ráðstefnuna.

Ákveðið hefur verið að kalla ekki eftir innsendum fyrirlestrum fyrir ráðstefnu heldur gefa fólki aukið svigrúm vegna sumarleyfa. 

 

Allir þátttakendur þurfa að skrá sig fyrir 10. ágúst, en skráningargjöldum hefur verið stillt í lágmark.

Ráðstefnugjald á að greiðast inn á reikning Háskóla Íslands, Landsbanka Íslands, Vesturbæarútibú, reikningsnúmer: 137-26-476, kennitala reikningseiganda: 600169-2039.

Í skýringar setjið 1057-10570 og ykkar nafn.

 

Almennt þátttökugjald er 4.000 krónur. 

Nemendagjald er 2.000 krónur. 

Innifalið í skráningu er aðgangur að báðum dögum ráðstefnunnar auk kokteils á lokakvöldi ráðstefnunnar þann 17. ágúst.

 

Með von um góða þátttöku.

Skipulagsnefnd.

 

Ráðstefna þessi er samstarfsverkefni eftirtalinna: Mannfræðistofnunar Háskóla Íslands, Mannfræðiskorar Háskóla Íslands, Mannfræðifélags Íslands, Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og Félagsvísinda- og lagadeildar við Háskólann á Akureyri.

 

 

10. júlí 2007

Fréttabréf Mannfræðifélags Íslands

Fréttabréf félagsins var sent til allra félagsmanna í byrjun mánaðarins og er núna komið á netið. Fréttabréfið er hægt að nálgast hér.

 

5. júlí 2007

Er Mannfræðifélag Íslands fyrir þig?

Síðan Mannfræðifélag Íslands var stofnað í september 2002 hefur félagið staðið fyrir á fimmta tug viðburða, sem flestir hafa verið mjög vel sóttir. Mannfræðifélag Íslands er kjörinn vettvangur til að kynnast öðrum mannfræðingum og mannfræðinemum og fylgjast með því hvað er efst á baugi í greininni á Íslandi.

Allir sem hafa lokið háskólaprófi í mannfræði eða stunda framhaldsnám í mannfræði geta orðið fullgildir félagar. Þeir sem stunda grunnnám í mannfræði á háskólastigi geta fengið aukaaðild að félaginu og hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum félagsins. Aukafélagar greiða hálft árgjald.

Ef þú vilt gerast félagi geturðu sótt inntökueyðublað hér á síðunni og sent það ífyllt á netfang félagsins, mi@akademia.is

 

25. júní 2007

Mannfræði á 21. öldinni.

Ráðstefna mannfræðinga um mannfræði á 21. öldinni verður haldin 16.-17. ágúst 2007, í Háskóla Íslands. Ráðstefnan er samstarfsvettvangur eftirtalinna: Mannfræðistofnunar Háskóla Íslands, Mannfræðiskorar Háskóla Íslands, Mannfræðifélags Íslands, Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og Félagsvísinda- og lagadeildar við Háskólann á Akureyri.

 

Á undanförnum árum hefur verið mikil gróska í rannsóknum í mannfræði með auknum fjölda einstaklinga sem hafa farið í framhaldsnám í fræðunum. Auk þess hefur mannfræðin í auknum mæli verið að ryðja sér rúms á atvinnumarkaði. Ráðstefna þessi er vettvangur fyrir þennan fjölbreytta hóp mannfræðinga til að ræða helstu áherslur, hagnýtingu, víddir og kenningar innan sviðsins.

 

Markmið ráðstefnunnar um Mannfræði á 21. öldinni er að upplýsa okkur og samfélagið um hversu breitt svið mannfræðin spannar hér á landi og til að þjappa þessum margbreytilega hópi mannfræðinga saman. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem mannfræðingar geta hist og fjallað um rannsóknir sínar og viðfangsefni.

 

Á ráðstefnunni verður skoðað hvað er að gerast í mannfræði á Íslandi og hvað mannfræðingar eru að fást við. Viðfangsefni eru fjölbreytileg og eitt af markmiðum ráðstefnunnar er að draga þennan fjölbreytileika fram í dagsljósið og jafnframt að skoða sameiginlega snertifleti.

 

Almennt þátttökugjald er 4.000 krónur.

Nemendagjald er 2.000 krónur.

Innifalið í skráningu er aðgangur að báðum málstofum auk kokteils þann 17. ágúst á lokakvöldi ráðstefnunnar.

 

Nánari upplýsingar síðar.

 

Með von um góða þátttöku.

 

Skipulagsnefnd.

 

 

22. júní 2007

Skýrsla formanns 2007 komin á netið.

Skýrsla fromanns fyrir starfsárið 2007 er komin á síðuna, undir stjórn og lög. Þar er einnig hægt að nálgast eldri skýrslur. Einnig er hægt að nálgast skýrsluna hér (PDF).

 

 

8.júní 2007

Aðalfundur Mannfræðifélags Íslands.

Aðalfundur Mannfræðifélags Íslands var haldinn í gær í Reykjavíkur Akademíunni og var fundurinn vel sóttur.

 

Farið var yfir starfsemi félagsins síðasta starfsár og stóð félagið fyrir mörgum uppákomum. 8 skipulagðir fyrirlestrar voru haldnir í fyrirlestraröð félagsins og einnig 2 atburðir utan dagskrár.

 

Hallfríður Þórarinsdóttir lét af formennsku eftir næstum fimm ára starf sem formaður félagsins og eru henni færðar bestu þakkir fyrir óeigingjarnt starf.

 

Einnig var kosin ný stjórn. Sigrún Harðardóttir, Hjálmar Sigmarsson og Þórður Kristinsson gengu úr stjórn og íþeirra stað voru kosnar Unnur Steingrímsdóttir, Katrín Anna Lund og Marín Þórsdóttir. Sólveig Georgsdóttir, Anna Lísa Rúnarsóttir, Hallfríður Þórarinsdóttir og Droplaug Jónsdóttur sitja áfram í stjórn félagsins.

 

Framundan er spennandi starfsár og vill nýkjörin stjórn hvetja sem flesta til að fylgjast með og taka þátt í starfi félagsins.

 

Stjórnin

 

6.júní 2007

Tilkynning um aðalfund Mannfræðifélags Íslands.

Þann 7. júní  n.k  - á fimmtudagskvöldið kemur - verður aðalfundur Mannfræðifélags Íslands. Fundurinn verður haldinn í Reykjavíkur Akademíunni, Hringbraut 121. 4.hæð  og hefst  kl. 20:00.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

*        Skýrsla formanns

*        Endurskoðaðir reikningar félagsins

*        Kosning stjórnar

*        Kosning skoðunarmanna reikninga

*        Félagsgjöld

*        Lagabreytingar

*        Önnur mál

 

Félagar eru hvattir til að mæta og gefa kost á sér í stjórn og/eða leggja sitt af mörkum. MÍ þarf á liðstyrk ykkar að halda.

Athugið að óskir um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórn eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Allir sem greitt hafa félagsgjöld hafa atkvæðisrétt á aðalfundi.

 

Stjórnin

 

 

25. maí 2007

Dr. David B. Edwards á Íslandi.

Mannfræðingurinn David B. Edwards mun sýna heimildarmynd sína Kabul Transit í Tjarnarbíói fimmtudaginn 31. maí klukkan 20:00. Eftir sýningu á myndinni segir David nánar frá myndinni og rannsóknum sínum í Afganistan. Hægt er að nálgast kynningarbækling hér (PDF).

 

 

10. apríl 2007

Fyrirhuguðum fyrirlestri Dr. Agnars Helgasonar sem vera átti í dag frestað.

Fyrirhuguðum fyrirlestri Dr. Agnars Helgasonar Að eltast við fótspor forfeðra og formæðra: Saga fólksflutninga rakin með erfðarannsóknum, sem vera átti skv. dagskrá MÍ í dag, þriðjudaginn 10. apríl, verður frestað um viku af óviðráðanlegum orsökum. Agnar mun halda fyrirlesturinn þann 17. apríl kl. 20:00 í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121. 4.hæð. Allir velkomnir!!

 

 

18.mars 2007
Ný ritstjórn vefsins loks tekin til starfa.
Eftir langa þögn á heimsíðu Mannfræðifélagsins hefur loks tekist að koma nýrri ritstjórn í gang. Jónas G. Allansson, fyrrum umsjónarmaður síðunnar er fjarri góðu gamni í bjargvættarstarfi í Asíu og verður þar eitthvað um sinn. Hann hefur því sagt skilið við stjórn félagsins eins og er og í stað hans hefur Droplaug Jónsdóttir tekið sæti í stjórn. Við þökkum Jónasi kærlega fyrir öll þau góðu störf sem hann vann fyrir félagið og vonum að við getum nýtt krafta hans að nýju síðar. Stjórn félagsins fannst Jónas vera þriggja manna maki í ritstjórastörfum sínum þannig að nú höfum við fengið þrjá vefstjóra í stað hans, en það eru þau Droplaug Jónsdóttir, Sigrún Harðardóttir og Þórður Kristinsson. Hvetja þau lesendur vefsins að koma með ábendingar og skrif sem þeir kunna að telja að eigi erindi inn á vefinn.

29.október 2006
Fyrirlestar úr fyrirlestraröðinni Vald, þekking, átök aðgengilegir á netinu.

Nú er hægt að nálgast fyrirlestra sem fluttir hafa verið í fyrirlestraröðinni Vald, þekking og átök á heimsíðu Mannfræðifélagsins. Sjá hér

25.september 2006
Síðbúnar fréttir betri en engar fréttir...
Það er óhætt að segja að vefur Mannfræðifélagsins sé meira sögulegur en vefur úr samtímanum því hér hefur þögnin haft lögheimili frá Þorra. En vefstjórinn er snúinn aftur út sjálfskipaðri útlegð í Asíu og hefst handa þar sem frá var horfið. Það hefur hinsvegar margt gerst þó lítið hafið verið um það fjallað. Mannfræðifélagið kaus sér nýja stjórn og nú er í uppsiglingu mannfræðiráðstefna í samstarfi Mannfræðistofunnar Háskóla Íslands og Mannfræðifélagsins. Núverandi stjórn Mannfræðifélags Íslands skipa Hallfríður Þórarinsdóttir, formaður; Sólveg Georgsdóttir, gjaldkeri; Þórður Kristinsson, ritari; Anna Lísa Rúnarsdóttir;Hjálmar Sigmarsson; Jónas G. Allansson, varamaður; Sigrún Harðardóttir, varamaður. Skýrsla stjórna og annað áhugavert efni er á leiðinni…


20.september 2006
Vald, þekking, átök: Fyrirlestrarröð Mannfræðifélags Íslands 2006-2007
Það er ánægjuefni að bjóða ykkur velkomin á fyrirlestra Mannfræðifélags Íslands starfsárið 2006-2007. Líkt og endranær er metnaðurinn í fyrirrúmi og við skirrumst ekkert við að taka slaginn. Röðin hjá okkur í ár ber yfirskriftina: VALD, ÞEKKING, ÁTÖK. Við byrjum á Kárahnjúkum og höldum okkur á “sprengjusvæðinu” Austurlandi fyrstu tvo fyrirlestrana. Dagskrá vetrarins er mjög fjölbreytt að vanda. Við fáum að heyra af átökum um kynhlutverk og starf, þekkingu og andófi í frjálsum félagasamtökum, fjallgöngugarpa í Skotlandi átök um þekkingu á landi, þróun þróunaraðstoðar og átök á því umdeilda sviði, íslenskar erfðarannsóknir og þekkingu þar að lútandi, og að lokum er það hvalurinn, sem sannarlega hefur verið á milli tannanna á fólki í þess orðs bestu, ekki satt?
Athugið að hægt er að skoða dagskrána hér.

22.mars 2006
Mannfræðifélagið og Mannfræðistofnun HÍ funda.
Nú nýverið fór í gang undirbúningur að samstarfi á milli MHÍ og MÍ svo að búast má við að fljótlega birtist hér hugmyndir um djarflega framsókn mannfræðinnar. Nú þegar hafa verið haldnir einhverjir fundir. Við hér á mannfræðivefnum munum upplýsa ykkur um framhaldið.

02.desember 2006
Kæru félagar, Mannfræðifélagið óskar ykkur gleðilegs nýs árs! Við vonumst til þess að næsta ár verði enn eitt árið með kröftugri starfsemi. Frá og með mars á þessu ári hafa yfir 2000 manns heimsótt heimasíðu félagsins og það frá fjölmörgum þjóðlöndum. Félagið hefur margt á prjónunum og er alltaf opið fyrir nýju hugmyndum um dagskrárliði eða hvernig best megi haga starfsemi félagsins. Meðal þess sem hægt er að nefna er að vonast er til að nánar samstarf verði á milli félagsins og ýmissa stofnanna er eiga að vinna að rannsóknum og kennslu í greininni. Þá er félagið ásamt öðrum að undirbúa þverfagleg málþing sem eiga að draga athygli að starfi fræðimanna sem hafa verið leiðandi í íslenskum hug- og félagsvísindum á síðustu áratugum. Enn og aftur viljum hvetja alla áhugamenn um mannfræði að koma með hugmyndir og eldmóð inn í starf félagsins á nýju ári eins og þið hafið gert á liðnum árum.

28.nóvember 2005
Fundur um menntun og mannfræði.
Jónas G. Allansson
Ekki alls fyrir löngu hittust nokkrir mannfræðingar til að ræða um hlutverki og möguleika mannfræðimenntunnar í skólakerfinu. Umræðan var ekki aðeins bundin við eitt skólastig heldur var farið um víðan völl og spáð í hvaða gildi fræðigreinin gæti haft á umræðu og menntun í samfélaginu. Það lék enginn vafi á því að nú, sem aldrei fyrr, virðast mörg af viðfangsefnum samtímans skýrskota til mannfræðinnar. Þar nægir t.d. að nefna yfirfærslu menningarhugtaksins yfir á margvísleg svið þjóðfélagsins s.s. þegar talað er um viðskiptamenningu, menningartengda ferðaþjónustu, fjölmenningu, barnamenningu, vinnustaðamenningu og svo mætti lengi telja. Meira

28.nóvember 2005
Samdrykkja Samfélagsins, félags framhaldsnema í félagsvísindadeild
Marín Þórsdóttir, mannfræðinemi
Fimmtudaginn 17. nóvember síðastliðinn var fyrsta samdrykkja Samfélagsins, félag framhaldsnema í félagsvísindadeild haldinn á Kaffi Victor. Fjölmennt var og létu þar sjá sig nemar í BA námi í mannfræði sem og í MA og doktorsnámi, kennarar í Háskóla Íslands og aðrir fræðimenn. Þema kvöldsins var neyslusiðir og vinnusemi Íslendinga. Frummælendur kvöldsins voru þeir Sveinn Eggertsson lektor í mannfræði við HÍ og Hjálmar Sigmarsson MA nemi í mannfræði í HÍ. Að loknu erindum þeirra var tími fyrir létt spjall, fræðilegt og hagnýtt. Meira

21. nóvember 2005
Kastljósviðtal við Helgu Þóreyju Björnsdóttur, mannfræðing.
Af gefnu tilefni viljum við benda ykkur á áhugavert viðtal við Helgu Þóreyju Björnsdóttur mannfræðing sem hefur unnið að rannsóknum á lífi heimilislausra í Reykjavík. Hér er hægt að skoða viðtalið á heimsíðu RÚV undir Kastljós 21. nóvember 2005.

 

21. október 2006
Málþing um kanadíska frumbyggja- og landnemamenningu í Salnum
Málþing um kanadíska frumbyggja- og landnemamenningu verður haldið í Salnum í Kópavogi laugardaginn 21. október kl. 10-13 á Kanadískri menningarhátíð. Þar verður fjallað um menningu frumbyggja og landnema í Kanada og samskipti þeirra í fjölda áhugaverðra erinda, sjá viðhengda dagskrá. Málþingið er haldið í samstarfi við ReykjavíkurAkademíuna. Frummælendur eru Viðar Hreinsson, Gísli Pálsson, Björk Bjarnadóttir, Garðar Baldvinsson, Gísli Sigurðsson og Ásta Sól Kristjánsdóttir og fundarstjóri Salvör Nordal. Nánari upplýsingar í viðhengdri dagskrá. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á salurinn@salurinn.is eða í síma
5 700 400.
Nánari upplýsingar um aðra dagskrá Kanadískrar menningarhátíðar á http://www.kopavogur.is/



 

 

 

 

 

Webstats4U - Free web site statistics