(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Akademían
  4.  » Saga ReykjavíkurAkademíunnar

Saga ReykjavíkurAkademíunnar

Frá stofnun hefur markmið ReykjavíkurAkademíunnar verið nýta kraftar vel menntaðra fræðimanna í hug- og félagsvísindum og að búa þeim starfsumhverfi sem auðveldar sjálfstætt starfandi fræðimönnum að láta til sín taka. Á þeim forsendum hefur ReykjavíkurAkademían verið mikilvægt kennileiti í menningar- og menntalandslagi alls landsins, fyrst í JL-húsinu við Hringbraut en frá árinu 2014 í Þórunnartúni 2. Þar hefur Akademían hýst margvíslega starfsemi sem flokkast undir fræði- og menningarstarfsemi í víðri merkingu þótt kjölfestan sé og hafi verið fræðilegar grunnrannsóknir innan ólíkra greina félags- og hugvísinda.