Bókarfregn

Old Norse-Icelandic Philology and National Identity in the Long Nineteenth CenturyGreinasafnið Old Norse-Icelandic Philology and National Identity in the Long Nineteenth Century er komið út hjá hollenska forlaginu Brill. Gylfi Gunnlaugsson og Clarence E. Glad ritstýrðu. Safnið er í meginatriðum byggt á rannsókn­arverkefninu Íslenskar fornritarann­sóknir og þjóðarmenning 1780-1918, sem hlaut verkefnisstyrk úr Rannsóknasjóði (í umsjá Rannís) árið 2014. Höfuðstöðvar þess voru í Reykjavíkur­Akadem­íunni.

Auk ítarlegs inn­gangs, inni­heldur bókin tólf mis­langar ritgerðir, þar sem fjallað er um þjóðernisleg viðhorf hóps fræðimanna, einkum íslenskra, sem stunduðu rannsóknir og útgáfur á nor­ræn­um forn­bókmenntum á hinu tilgreinda tímabili. Sumir kaflarnir eiga rætur í er­indum á al­þjóðlegu málþingi um efnið, sem Study Platform on Inter­locking Nationalisms (SPIN) bauð til í Amsterdam í nóvember 2016. Bókin fæst bæði í prentaðri gerð og sem rafbók. Sjá nánari upplýsingar hér:

ReykjavíkurAkademían óskar þeim Gylfa og Clarence til hamingju með stórglæsilega útgáfu.