(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Aðalfundur
  4.  » Aðalfundur 2021

Aðalfundur 2021

by | 4. jún, 2021 | Aðalfundur, Fréttir

Aðalfundur ReykjavíkurAkademíunnar 2021 var haldinn fimmtudaginn 3. júní.

Guðrún Hallgrímsdóttir stýrði fundi og Þorleifur Hauksson ritaði fundargerð. Að venju gerði formaður stjórnar félagsins, Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, grein fyrir störfum stjórnar og Arnþór Gunnarsson gjaldkeri kynnti reikningana. Þá fór Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir framkvæmdastjóri yfir starfsemi ReykjavíkurAkademíunnar ses á árinu 2020 og kynnti ársreikning þess.

Formaður Félags ReykjavíkurAkademíunnar var kosin Ásthildur Elva Bernharðsdóttir og í stjórn með henni Guðrún Hallgrímsdóttir, Árni Finnsson, Bára Baldursdóttir og Salvör Aradóttir. Formaður RA ses var kjörin Ingunn Ásdísardóttir, Í stjórn með henni voru kosin þau  Ásthildur Elva, Kristín Jónsdóttir, Gylfi Gunnlaugsson og Ásta Kristín Benediktsdóttir, ennfremur þau Lilja Hjartardóttir og Ingimar Einarsson.

Samþykktar voru breytingar á lögum félagsins.

Sem skoðunarmenn reikninga félagsins voru sjálfkjörnir Björn S. Stefánsson og Jón Pálsson.

Félagsgjöld á árinu 2021 voru ákveðin óbreytt, 2.700 krónur.

Ársskýrsla RA 2020

Lög Félags ReykjavíkurAkademíunnar samþykkt á aðalfundi 2021