1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Um kotungshátt 9. apríl

Um kotungshátt 9. apríl

by | 6. Apr, 2010 | Fréttir

Fimmti fyrirlestur í samstarfsverkefni ReykjavíkurAkademíunnar, ÍNOR og Háskólans á Bifröst fer fram í hátíðarsal akademíunnar föstudaginn  9. apríl frá klukkan kl. 12:00 -13:30. Viðar Hreinsson, bókmenntafræðingur, flytur fyrirlesturinn “Að hefjast í hærri stað og þaðan minnkast”: Um kotungshátt.

Öll velkomin.

Viðar Hreinsson

Ekki þarf að fjölyrða um það dómgreindarlausa oflæti sem valdið hefur ýmsum brestum í íslensku samfélagi undanfarin misseri. Í erindinu verður spurt hvort oflætið og dómgreindarleysið geti ekki átt djúpar menningarlegar rætur, hvort hrunið sé kannski fyrst og fremst menningarlegt.

Drepið verður á ýmis atriði úr íslenskri menningarsögu sem vekja þá spurningu hvort fyrsta skrefið í menningarlegri endurreisn hljóti ekki að felast í því að kannast við kotunginn í sjálfum sér.

Viðar Hreinsson er sjálfstætt starfandi bókmenntafræðingur, mag. art. frá Hafnarháskóla. Hann hefur ritað fræðigreinar og ævisögur og ritstýrt þýðingum Íslendingasagna. Hann hefur verið í ReykjavíkurAkademíunni frá stofnun hennar og var framkvæmdastjóri hennar frá 1. september 2005 til 31. mars sl.

Hildigunnur Ólafsdóttir stýrir fundi og umræðum.

Á vef Háskólans á Bifröst (www.bifrost.is) verður hægt að nálgast upptökur fyrirlestranna á meðan röðin stendur yfir.

http://secure.emission.is/player/?r=cebeaa2d-4f2c-431f-9b67-9f8d5deaf2aa

Sjá nánar á www.inor.is

Verkefnið er stutt af Reykjavíkurborg