(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Arnþór Gunnarsson tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis

Arnþór Gunnarsson tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis

by | 10. feb, 2022 | Fréttir

Arnþór Gunnarsson, Saga hæstaréttarArnþór Gunnarsson sagnfræðingur hefur verið tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis fyrir ritið  Hæstiréttur í hundrað ár. Saga sem nýlega kom út hjá Bókmenntafélaginu. Í umsögn dómnefndar kemur fram að um sé að ræða “verðugt afmælisrit sem grefur upp forvitnilegar og oft óvæntar hliðar á sögu æðsta dómstóls sjálfstæðs Íslands.”

Ásamt Arnþóri eru 9 fræðimenn tilnefndir til Viðurkenningar Hagþenkis sem verður veitt við hátíðlega athöfn um miðjan mars.

ReykjavíkurAkademían óskar Arnþóri innilega til hamingju með tilnefninguna.