(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Árshátíð ReykjavíkurAkademíunnar.

Árshátíð ReykjavíkurAkademíunnar.

by | 24. apr, 2012 | Fréttir

Árshátíð
ReykjavíkurAkademíunnar,

Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna, 

verður haldinn

laugardaginn 28. apríl kl. 19:30

í fundarsal félagsins  Hringbraut 121, 4. hæð.

Á dagskrá er almenn gleði, fingramatur og dans.


Þema ársháðarinnar verður að þessu sinni Millistríðsárin og eru gesti hvattir til þess að mæta í því skapinu og dressinu. Leiðbeiningar um hvernig gott er að bera sig að munu streyma inn á næstu dögum og vikum.

Sem hluti af ársháðargleðinni og þemanu hefur Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og Reykjavíkurborgarsérfræðingur verið fenginn til þess að bjóða gestum í sögugönguna Rónar og Reykjavíkurdömur sem hefjast mun kl. 14 og endar á Borginni í kaffi rúmri klst. síðar.

Sælusjóðarbarinn verður opinn og býðst gestum að kaupa sér veigar á vægu verði.

Félagar utanhúss eru sérstaklega hvattir til þess að mæta og treysta böndin.

Miðaverð er 3800 kr. og skráning fer fram með því að greiða inn á  0101-26-530697 kt. 530697-3049 og senda staðfestinguna á ra@akademia.is

Kær kveðja,
Stjórnin