1. Forsíða
  2.  » 
  3. Fréttir
  4.  » Atli Antonsson verkefnisstjóri Rannsóknaþjónustu ReykjavíkurAkademíunnar

Atli Antonsson verkefnisstjóri Rannsóknaþjónustu ReykjavíkurAkademíunnar

by | 26. Apr, 2024 | Fréttir

Atli AntonssonAtli Antonsson bókmenntafræðingur hefur verið ráðinn verkefnisstjóri Rannsóknaþjónustu ReykjavíkurAkademíunnar og mun sinna fjölbreyttum verkefnum sem tengjast rannsóknum og rannsóknamiðlun. Atli er með netfangi atli [hja] akademia.is

Atli stefnir að því að verja doktorsritgerð sína við Háskóla Íslands í sumar (2024). Í doktorsverkefninu hefur hann reynt að bregða ljósi á það hvernig nábýlið við eldspúandi fjöll hefur mótað menningu og sjálfsmynd Íslendinga.