(354) 562 8565 ra@akademia.is
  1. Forsíða
  2.  » 
  3. Viðburðir RA
  4.  » 
  5. Dagsbrúnarfyrirlestrar
  6.  » Dagsbrúnarfyrirlestur 2012. Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur

Dagsbrúnarfyrirlestur 2012. Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur

by | 5. nóv, 2012 | Dagsbrúnarfyrirlestrar, Fréttir, Viðburðir RA

Í fyrirlestrinum fjallaði Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur um Verkamannafélagið Dagsbrún. Erindið  er byggt á ritinu Dagar vinnu og vona: Saga Verkamannafélagsins Dagsbrúnar í kreppu og köldu stríði sem nýlega kom út hjá Háskólaútgáfunni og er sjálfstætt framhald af bókinni Við brún nýs dags. Saga Verkamannafélagsins Dagsbrúnar 1906 – 1930 (2007). Í bókinni fetaðar Þorleifur nýjar brautir í íslenskri samtímasögu, hvorki hefðbundin félagssaga né strípuð fræðileg greining. Hún er enn síður saga af hetjum og fórnarlömbum.

Verkamannafélagið Dagsbrún er leiðarhnoða um samfélag alþýðufólks. Með aðstoð félagsins fetum við okkur um umhverfi og hugmyndaheim samfélags sem einu sinni var og dýpkum jafnframt skilning okkar á því sem er.
Verkið er tilraun til þess að skoða viðfang allrar sagnfræði, manneskjuna sjálfa, í umhverfi sem byggt er á hlutlægri sagnfræðilegri rannsókn.

Bókin er prýdd fjölda ljósmynda af vettvangi vinnunnar og hversdagslífs. Þær eru flestar teknar af Karli Christian Nielsen (1895–1951), verkamanni. Linsuauga hans er notað til þess að skoða heim alþýðufólks, vinnuna, húsnæði, klæði og annað sem taldist til hvunndagslífs í Reykjavík fram um miðja 20. öld.

_______
Texti fréttarinnar er ritaður í nóvember 2021 og byggir á upplýsingum um bók Þorleifs fengnum af vef Háskólaútgáfunnar.